epli.is - iPad 101 Ólafur Sólimann
-
- Technology
Leiðbeiningar um allt iPad. Hvaða hnappa og takka á að nota, hvernig og til hvers.
Einnig eru hér myndbönd sem innihalda hinar og þessar upplýsingar frá viðburðum epli.is
-
- video
Lyklaborðið
Þar sem lyklaborðið á iPad er stafrænt er auðvelt að breyta lyklaborðskipan og skipta á milli. Þannig er t.d. hægt að hafa lyklaborðið stillt á danska lyklaborðskipan, kínverska eða rússneska. Fleiri möguleikar eru í boði sem verður farið yfir hér.
-
- video
Dags- og tímasetningar: Date and Time
Sýnt hvernig er best að stilla inn dags og tímasetningar á iPad.
-
- video
Fjölsnertiaðgerðir - Multitouch Gestures
Það er hægt að nota allskyns aðgerðir til að stýra iPadnum og þar sem hann er útbúin fjölsnertiskjá þá er hægt að gefa skipanir með því að pota og strjúka tækinu á mismunandi hátt. Hér verður farið yfir hvernig það er gert til að t.d. opna og loka forritum og flakka á milli.
-
- video
Hliðartakkinn
Fyrir ofan takkann til að hækka og lækka á hliðinni er lítill takki. Það er hægt að breyta virkni þessa takka og hér er sýnt hvernig það er gert og sömuleiðs hvað gerist ef við tvísmellum á heimatakkann.
-
- video
Að setja Takmarkanir: Restrictions
Farið yfir hvernig er hægt að velja ákveðnar takmarkanir á iPad með því að setja inn lykilorð. Þannig er til dæmis hægt að taka burt Safari og allar nettengingar á tækinu ef fólk vill ekki að iPad sé notaður til að vera á netinu. Einnig er hægt að takmarka búðir svo að það sé ekki hægt að uppfæra eða niðurhalda forritum o.fl.
-
- video
iPad Cover Lock/Unlock
Farið yfir hvernig við getum kveikt og slökkt á því hvort að iPad fer í gang og í svefn þegar við lokum honum með hlífum með segul.