Kapphlaupið til tunglsins Sævar Helgi Bragason
-
- Science
Podcast by Sævar Helgi Bragason
-
Kapphlaupið til tunglsins — 12. þáttur: Tunglferjan
Eftir sögulegan leiðangur Apollo 8 átti aðeins eftir að prófa tunglferjuna og tunglbúninginn áður en hægt var að lenda á tunglinu. Apollo 9 var draumaleiðangur tilraunaflugmannsins.
-
Kapphlaupið til tunglsins — 13. þáttur: Lokaæfing fyrir tungllendingu
Þegar búið var að prófa tunglferjuna á braut um Jörðina, varð að prófa hana aftur á braut um tunglið. Apollo 10 var lokaæfingin fyrir tungllendingu.
-
Kapphlaupið til tunglsins — 18. þáttur: Stefnumót á Stormahafinu
Fjórum mánuðum eftir fyrstu tungllendinguna var komið að áhöfn Apollo 12 að endurtaka leikinn. Þeir Pete Conrad og Alan Bean áttu stefnumót við annað ómannað geimfar sem lent hafði tveimur árum áður á Stormahafinu.
-
Kapphlaupið til tunglsins — 6. þáttur: Satúrnus 5 eldflaugin
Til að komast til tunglsins þurfti öflugri eldflaug en nokkru sinni fyrr. Í Huntsville í Alabama hófust Wernher von Braun og teymi hans handa við að þróa Satúrnus 5 eldflaugina sem að lokum flutti menn frá Jörðinni til tunglsins.
-
Kapphlaupið til tunglsins — 9. þáttur: Sovéska tungláætlunin
Árið 1967 var slæmt geimferðaár. Þremur mánuðum eftir eldsvoðann í Apollo 1 settist Vladimir Komarov inn í nýtt geimfar sem leggja átti grunninn að ferðum Sovétmanna frá Jörðinni til tunglsins.
-
Kapphlaupið til tunglsins — 11. þáttur: Jól á braut um tunglið
Rétt fyrir jól árið 1968 fór áhöfn Apollo 8 í lengsta og hættulegasta ferðalag sem mannkynið hafði lagt upp í: Ferðalag frá Jörðinni til tunglsins.