![](/assets/artwork/1x1-42817eea7ade52607a760cbee00d1495.gif)
516 épisodes
![](/assets/artwork/1x1-42817eea7ade52607a760cbee00d1495.gif)
Samstöðin Samstöðin
-
- Actualités
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.
Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
-
Grimmi og Snar #19 - Sannleikurinn mun gera þig frjálsan, samhljómur og tíminn. Toppið það
Fimmtudagur, 27. júní
Grimmi og Snar #19 - Sannleikurinn mun gera þig frjálsan, samhljómur og tíminn. Toppið það
Rómverskur🌞talnaspekingur hitti Grimma og Snar stuttlega í síðasta þættinum fyrir sumarfrí. Annars voru þungu málin tekin fyrir og spádómar 🫀💍👑 -
Grimmi og Snar #19 - Sannleikurinn mun gera þig frjálsan, samhljómur og tíminn. Toppið það
Fimmtudagur, 27. júní
Grimmi og Snar #19 - Sannleikurinn mun gera þig frjálsan, samhljómur og tíminn. Toppið það
Rómverskur🌞talnaspekingur hitti Grimma og Snar stuttlega í síðasta þættinum fyrir sumarfrí. Annars voru þungu málin tekin fyrir og spádómar 🫀💍👑 -
Rauða borðið 27. júní - Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakkland
Fimmtudagurinn 27. júní
Vg, húsnæðismarkaðurinn, heimsmálin og Frakkland
Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg talar um stöðu flokksins, rætur hans og framtíð. Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata ræða um húsnæðismál og einkum leigumarkaðinn. Tjörvi Schiöth fjallar um Bólivíu, Ísrael og Bandaríkin og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og Mörður Árnason íslenskufræðingur fjalla um franska pólitík. -
Rauða borðið 26. júní - Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk list
Miðvikudagurinn 26. júní:
Vopnvæðing samsæriskenninga, vandi Vg og skóla og pólitísk list
Við ræðum við Eirík Bergmann um vopnvæðingu samsæriskenninga, nýja hægrið og könnun Maskínu sem mælir Sjálfstæðisflokkinn með 14,7% fylgi. Lilja Rafney Magnúsdóttir segir okkur hvers vegna grásleppa var kornið sem fyllti mælinn og fékk hana til að ganga úr Vg. Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla segir að lagaskyldu sé ekki sinnt þar sem nemendur í grunnskólum fái ekki þá menntun sem þeim ber samkvæmt lögum. Steinunn Gunnlaugsdóttir er með sýningu í Gluggagallerínu Stétt og kemur að ræða hana við Rauða borðið ásamt Jóni Proppé listfræðingi. Er listin að verða pólitískari? -
Sjávarútvegsspjallið - 11. þáttur
Fimmtudagur, 26. júní
Sjávarútvegsspjallið - 11. þáttur
Grétar Mar ræðir við þá Jón Kristjánsson fiskifræðing og Jónas Pál Jónasson frá Hafrannsóknarstofnun -
Rauða borðið 25. júní - Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunni
Þriðjudagurinn 25. júní
Pólitíkin, Ríkisútvarpið og konur í sögunni
Við byrjum á pólitísku uppgjöri. Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og Sjálfstæðisflokksmaður, Sigmundur Erni Rúnarsson blaðamaður, skáld og Samfylkingarmaður, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokks Vg og Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins ræða pólitíkina, um hvað hún er og hvert hún stefnir. Lára Magnúsdóttir sagnfræðingur ræðir um Ríkisútvarpið og skort á stefnu þar innandyra. Og Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur segir okkur frá vinnukonunni Guðrúnu Ketilsdóttur, sem kölluð var Gunna suða, og stórbýlinu Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem Ragnheiður Scheving stýrði búi.