Fotbolti.net Fotbolti.net
-
- Sport
Podcastþættir Fótbolta.net
-
EM hringborðið - Lárus Orri og Óðinn Svan ræða fyrstu vikuna
Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti.
Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni.
Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þá tók Lárus Orri góða ræðu um VAR en hann vill fá myndbandstæknina til Íslands sem allra fyrst.
Þátturinn var tekinn upp fyrir leik Spánar og Ítalíu -
Innkastið - Gregg rekinn og deildin opnast upp á gátt
Innkastið eftir 10. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og markvarðasérfræðingurinn Runólfur Trausti.
Runólfur er stuðningsmaður KR en í morgun var staðfest að Gregg Ryder hefði verið rekinn. Það er fyrsta mál á dagskrá þáttarins.
Þá er farið yfir alla leiki umferðarinnar, þar á meðal stórskemmtilegan toppslag Vals og Víkings. Deildin er galopin á toppi og botni. -
Útvarpsþátturinn - Bestu og verstu kaupin í Bestu, bikarinn og EM
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní.
Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net.
Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira.
Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint að EM. Björn Már Ólafsson sérfræðingur í ítalska boltanum rýnir í liðið sem ríkjandi Evrópumeistarar senda á mótið. -
Leiðin á Laugardalsvöll - Ástríðan í Fífunni og Bjarni Jó í viðtali
Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn.
Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar.
Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum.
Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka þátt í þessu móti í fyrsta sinn. -
Allir riðlarnir á EM skoðaðir með Gunna Birgis og Jóa Ástvalds
Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg.
Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið.
Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót. -
Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley
Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill.
Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley.
Þá er fjallað um íslenska boltann.