1.997 Folgen

Podcastþættir Fótbolta.net

Fotbolti.net Fotbolti.net

    • Sport

Podcastþættir Fótbolta.net

    Allir riðlarnir á EM skoðaðir með Gunna Birgis og Jóa Ástvalds

    Allir riðlarnir á EM skoðaðir með Gunna Birgis og Jóa Ástvalds

    Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg.

    Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið.

    Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.

    Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley

    Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley

    Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill.

    Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley.

    Þá er fjallað um íslenska boltann.

    Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni

    Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni

    Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt.

    Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira.

    Guðrún Elísabet er á sínu öðru tímabili með Val og Jasmín er á sínu fyrsta tímabili hjá Íslandsmeisturunum, en þær eru báðar að finna sig vel í öflugu umhverfi á Hlíðarenda.

    Innkastið - Ömurlegur varnarleikur í markaveislu

    Innkastið - Ömurlegur varnarleikur í markaveislu

    Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnarsson stýrir að þessu sinni en með honum eru Haraldur Árni Hróðmarsson og Tómas Þór Þórðarson.

    Það var sett markamet fyrir eina umferð en varnarleikurinn var ekki upp á marga fiska, þá sérstaklega ekki hjá KR í Vesturbænum.

    Ísak Snær sendi skilaboð í Kórnum, Víkingur þurfti að hlaupa mikið gegn Fylki, Vestri barði á Stjörnumönnum, ÍA lagði vonlausa KA-menn og FH tapaði niður þriggja marka forystu gegn Fram.

    Útvarpsþátturinn - Sérfræðingurinn Sævar Atli og fjármálaskýrsla

    Útvarpsþátturinn - Sérfræðingurinn Sævar Atli og fjármálaskýrsla

    Útvarpsþátturinn á kosningadegi. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.

    Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby, er með þeim í þættinum. Þeir þrír fara yfir helstu fótboltafréttir vikunnar, leiki Bestu deildarinnar og Lengjudeildarinnar og ýmislegt fleira.

    Í seinni hlutanum kemur Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitíkinni. Hann hefur skoðað samantektarskýrslu Deloitte og KSÍ um fjármál íslenskrar knattspyrnu og fer yfir það sem honum finnst áhugaverðast.

    Enski boltinn - Úrslitaleikurinn og tímabil Man Utd

    Enski boltinn - Úrslitaleikurinn og tímabil Man Utd

    Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn fóru yfir bikarúrslitaleikinn og tímabilið hjá Manchester United með Sæbirni Steinke.

    Man Utd varð bíkarmeistari eftir sigur á Man City um síðustu helgi, úrslit sem komu mörgum á óvart.

    Einstakir leikmenn í liðinu voru til umræðu og rætt vel um framtíð stjórans. Þá voru vangaveltur um hvaða leikmenn þyrfti að selja og hvaða stöður þyrfti að styrkja

Top‑Podcasts in Sport

Der vierte Stern
kicker
Einfach mal Luppen
Toni Kroos, Felix Kroos & Studio Bummens
Stammplatz – Fußball News täglich
BILD
Rasenfunk – Nationalteams und Turniere (EM/WM, etc.)
Rasenfunk
Wir Weltmeister. Auf der Suche nach 2014
NDR
Der SPORT1 Doppelpass
SPORT1, Florian König, Ruth Hofmann und Katharina Kleinfeldt

Das gefällt dir vielleicht auch

Þungavigtin
Tal
Steve Dagskrá
Steve Dagskrá
Dr. Football Podcast
Hjörvar Hafliðason
Chess After Dark
Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson
Gula Spjaldið
Gula Spjaldið
433.is
433.is