11 episodes

Áttaviti Ferðafélags Íslands. Fyrir allt áhugafólk um útivist og fjallamennsku.

Áttavitinn - Ferðafélag Íslands Pixelmedia

    • Society & Culture

Áttaviti Ferðafélags Íslands. Fyrir allt áhugafólk um útivist og fjallamennsku.

    11 - Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ

    11 - Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ

    Gestur þáttarins í dag er Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands. Ólafur er með masterpróf frá Englandi í skipulagi byggða og bæja og BA-próf í sögu- og jarðfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur er fyrrverandi alþingismaður en hann sat á þingi frá árinu 1995-2003. Og Ólafur var einnig Þjóðgarðsvörður Þingvalla frá árinu 2010-2017.

    Ólafur hefur ferðast víða og stundað fjallamennsku vítt og breitt um heiminn og klifið mörg háfjöll m.a. Mont Blanc, Kilimanjaro og Aconcagua hæsta fjall Suður Ameríku.

    Ólafur er brautryðjandi í íslenskri fjallamennsku, hann var m.a. í fyrstu skíðaleiðangrum Íslendinga yfir Grænlandsjökul og á Suðurpólinn.

    • 52 min
    10 - Næring á fjöllum

    10 - Næring á fjöllum

    Umræðuefni þáttarins er næring á fjöllum. Viðmælendur eru Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson. Öll hafa þau mikla reynslu af næringu og tengingu næringar og árangurs á fjöllum. Í þættinum er farið máltíðir, skipulagningu og samsetningu máltíða, orkuþörk, vökvastjórnun ofl.

    • 1 hr 7 min
    09 - Jóhann Kári Ívarsson - Gekk reglulega 22km til að komast í sturtu

    09 - Jóhann Kári Ívarsson - Gekk reglulega 22km til að komast í sturtu

    Gestur þáttarins er Jóhann Kári Ívarsson skálavörður í einum afskekktasta skála ferðafélagsins, Hrafntinnuskeri sem er í um 1.100m hæð. Jóhann hefur starfað sem skálavörður síðan 2012 þar af lengstum í Hrafntinnuskeri. Í viðtalinu förum við yfir lífið á hálendi Íslands með þeim ævintýrum og áskorunum sem því fylgir og þróun mála í Hrafntinnuskeri, til dæmis segir Jóhann frá því hvernig hann gekk reglulega um 22 kílómetra leið til að komast í sturtu. Jóhann er einnig einn af umsjónarmönnum Ferðafélags Unga fólksins og ferðast vítt og breitt um landið með unga fólkinu í FÍ.

    • 32 min
    08 - Halldór Hafdal Halldórsson - Vitavörður FÍ og lífið á fjöllum

    08 - Halldór Hafdal Halldórsson - Vitavörður FÍ og lífið á fjöllum

    Dóri er einn af þúsundþjalasmiðum Ferðafélags Íslands. Hann segir hér m.a. söguna um hvernig hann var hætt kominn þegar hann féll útbyrðis á sjó um hávetur og hvernig reiðhjólakaup á netinu opnuðu leið fyrir hann í vitavörslu í Hornbjargsvita.

    • 30 min
    07 - Sigrún Valbergsdóttir - Ferðanefnd og úrval ferða hjá F.Í.

    07 - Sigrún Valbergsdóttir - Ferðanefnd og úrval ferða hjá F.Í.

    Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun FÍ. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða FÍ

    • 34 min
    06 - Sigríður Lóa - Njótum ferðalagsins

    06 - Sigríður Lóa - Njótum ferðalagsins

    Gestur þáttarins að þessu sinni er fararstjórinn og sálfræðingurinn Sigríður Lóa. Hún hvetur okkur að njóta ferðlagsins og gleyma ekki að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins. Sigríður Lóa minnir okkur einnig á mikilvægi hreyfingar í baráttunni gegn algengra lýðheilsusjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða.

    • 47 min

Top Podcasts In Society & Culture

Third Ear
Third Ear
Tyran
DR
Hvem er...
DR
Sørine & Livskraften
Kristeligt Dagblad
Afhørt
Ekstra Bladet
112 For Knuste Hjerter
Maria Jencel