43 episodes

Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Fortíð, nútíð og framtíð eru veiðilendur Váfuglsins og þær eru gjöfular. Komdu í ævintýraferð um íslenskan samtíma og ferðastu með um sögulegar slóðir. Síðan eru líka einhver jokes þarna.

Váfuglinn Váfuglinn

    • Comedy

Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Fortíð, nútíð og framtíð eru veiðilendur Váfuglsins og þær eru gjöfular. Komdu í ævintýraferð um íslenskan samtíma og ferðastu með um sögulegar slóðir. Síðan eru líka einhver jokes þarna.

    Brauð

    Brauð

    Váfuglinn gerir úttekt á brauðmenningu Íslands og hyllir brauðryðjendur í bakarastéttinni. Gæddu þér á nýbakaðri slæsu af Váfugli strax í dag. Það er svo sannarlega eitthvað ofan á brauð.

    • 58 min
    Numetal

    Numetal

    Váfuglinn rannsakar hið lítt viðurkennda sameiningarafl ólíkra unglingaheima 10. áratugarins, numetal. Með samtali yfir spilakassa og sígarettu, tókst að brúa bilið milli rokkara og rappara, goth-a og skoppara, í hinni óviðjananlegu numetal senu. En hver er staðan á numetal senunni í dag? Láttu ekki samfélagið velja þér hlutverk í leikriti lífsins. Fljúgðu frekar inn í helgina á vængjum Váfuglsins.

    • 1 hr 5 min
    Íslensk æði

    Íslensk æði

    Neyslubrjálæði Íslendinga finnur sér reglulega farveg í skrítnum æðum sem ganga yfir land og þjóð. Váfuglinn skoðar hér eftirminnileg æði í íslensku samfélagi í gegnum tíðina. Smelltu þér í fótanudd, stingdu upp í þig snuddu og komdu með Váfuglinum í ferðalag um undralönd íslenskra æða.

    • 1 hr 2 min
    2020 Jólaspecial

    2020 Jólaspecial

    Eins og hefðin býður þá er hátíðarstund í þessum jólaspecial Váfuglsins.

    Enn á ný renna jól í garð og Váfuglinn tekur stöðuna. Við veltum fyrir okkur jólahefðum - hvað þarf til að skapa þær og hvernig þær eru rofnar.

    Við veltum fyrir okkur hvernig jólahlutir vinna sér inn forskeytið "jóla-" og hvað er yfir höfuð jólalegt.

    Að lokum skoðum við jólagjafir ársins í spennandi yfirferð sem enginn má missa af.

    • 1 hr 1 min
    Íslenskir draumórar

    Íslenskir draumórar

    Í þessum þætti lítur Váfuglinn nánar á draumóra sem blundað hafa meðal íslensku þjóðarinnar, og birtingarmynd þeirra í íslenskri poppmenningu. Um hvað dreymir Ísland á daginn? Heimsfrægð? Sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna? Geimverur á Snæfellsnesi? Líklega allt þetta og fleira.

    Fuglinn fær til sín góðan gest að þessu sinni, hann Ara Eldjárn! Hlustendur gætu kannast við Ara, en hann er heimsfrægur grínmaður og svo er hann líka mjög fróður um íslenska poppmenningu.

    Fylgist með Ara og Váfuglunum yfirbjóða hvor aðra í gestalátum og vitleysisgangi!

    • 59 min
    Bílabingóið

    Bílabingóið

    Váfuglinn tekur í þetta sinn til skoðunar hina einu sönnu ást Íslendinga - bíla. Hrifning Íslendinga á bílum virðist hafa orðið strax við fyrstu kynni, jafnvel þó svo ekkert bensín hafi verið til á landinu til að keyra þá. Í þættinum lærum við um brautryðjendur á sviði ofsaaksturs eins og Snæra-Manga. Blessuð sé minning hans. Við endurnýjum kynnin við Thomsen-bíllinn og heyrum af nýjum heimildum sem benda til þess að Íslendingar hafi fundið upp bensín, einmitt til að keyra bíla. Skelltu nýjum kertum í skrjóðinn og keyrðu þennan Váfugl í gang!

    • 49 min

Top Podcasts In Comedy

My Therapist Ghosted Me
Global
Keep It Tight
HeadStuff Podcasts
The Blindboy Podcast
Blindboyboatclub
Who Replaced Avril Lavigne? Joanne McNally Investigates
BBC & CBC
I'm Grand Mam
Kevin Twomey and PJ Kirby
Call Her Daddy
Alex Cooper