130 episodes

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Draugar fortíðar Hljóðkirkjan

    • History
    • 4.9 • 561 Ratings

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

    #186 Carlos Kaiser: Fótboltamaðurinn sem forðaðist fótbolta

    #186 Carlos Kaiser: Fótboltamaðurinn sem forðaðist fótbolta

    Svikahrappar og svindlarar hafa ætíð vakið sérstaka athygli og jafnvel aðdáun meðal almennings. Stundum er ekki annað hægt en að dáðst að hugkvæmni þeirra sem nýta sér persónutöfra og samskiptahæfni til að koma sér áfram í lífinu. Vissulega eru til svindlarar sem engin ástæða er til að dást að. Fólk sem markvisst nýtir sér jafnvel neyð annarra og hagnast á því. Carlos Henrique Raposo fellur ekki í þann flokk hreinræktaðra illmenna en svikahrappur var hann vissulega og er í dag fyrstur til að viðurkenna það. Carlos fékk viðurnefnið Kaiser því hann þótti líkjast Frans Beckenbauer sem var einatt kallaður "Keisarinn". Eins og margir ungir drengir í Brasilíu dreymdi Carlos um að verða frægur fótboltamaður. Hann hafði útlitið og stæltan líkama. Þó var eitt mikilvægt sem Carlos vantaði: Hann var vita hæfileikalaus í fótbolta. Carlos var þó ákveðinn í að láta það ekki stoppa sig.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon

    Vefverslun Drauganna


    Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    • 1 hr 32 min
    #182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung

    #182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung

    Styrktaraðilar á Patreon fá í hverjum mánuði að velja á milli þriggja málefna. Að þessu sinni var stuðst við lýðræðisvísitölu breska tímaritsins The Economist. Valið stóð á milli þriggja ríkja sem reglulega verma botnsætið á þeim lista, teljast ein þau ólýðræðislegustu í heimi. Það voru Túrkmenistan, Sýrland og Norður-Kórea. Síðastnefnda ríkið varð hlutskarpast. Við beinum því nú sjónum að einu lokaðasta og ólýðræðislegasta ríki veraldar. Efnið er yfirgripsmikið og ótrúlegt svo það var ákveðið að taka þetta í tveimur þáttum. Þessi þáttur tekur fyrir stofnun Alþýðulýðveldisins Norður-Kóreu, Kóreustríðið og stjórnartíð Kim Il Sung. Söfnun Solaris: solaris.help/palestinaViltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon

    Vefverslun Drauganna


    Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    • 1 hr 58 min
    #178 Hægri umferð

    #178 Hægri umferð

    Sú var tíðin að sagnfræði fjallaði aðallega um hin „stóru efni“. Viðfangsefnin voru konungar, keisarar og heimsveldi. Eins og aðrar fræðigreinar hefur hún þróast og í dag má heyra talað um allskonar sögurannsóknir. Það er nefnilega oft áhugaverð saga á bakvið ýmislegt sem í fyrstu virðist ekki sérlega merkilegt. Hægri umferð var tekin upp á Íslandi þann. 26. maí 1968 á hinum svokallaða H-degi. Landsmenn voru spenntur fyrir þessu og undirbúningur var til mikillar fyrirmyndar. Ísland var eitt af seinustu löndum Evrópu til að gera þessa skiptingu. Í þættinum segjum við aðeins frá hvernig þetta fór fram hér á landi. Við skoðum einnig hvað olli því að vinstri umferð var eitt sinn algengari og hvernig það á rætur að rekja til stríðsreksturs og heimsvaldastefnu.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon

    Vefverslun Drauganna


    Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    • 1 hr 38 min
    #173 Óvinkonur Guðs - Sérstakur gestur: Dr. Yngvi Leifsson

    #173 Óvinkonur Guðs - Sérstakur gestur: Dr. Yngvi Leifsson

    Við höfum áður minnst á ólíkar nálgunaraðferðir sagnfræðinnar. Ein þeirra er einsagan. Þar skoða sagnfræðingar samfélagið og söguna frá einstaklingum. Oft er ekki um að ræða þjóðarleiðtoga eða ráðamenn. Frekar er það almenningur eða jafnvel fólk sem taldist vera neðarlega í goggunarröð samfélagsins. Í þessum þætti fáum við góðan gest í heimsókn en það er sagnfræðingurinn Yngvi Leifsson. Hann hefur lengi dvalist í borginni Salamanca á Spáni og stundað sínar rannsóknir þar. Salamanca var á sínum tíma talin einhverskonar "höfuðborg vændis" í Evrópu. Yngvi hefur rannsakað sögur þeirra kvenna og sérstaklega eitt ákveðið hús sem kallað var "Galeiðan". Það var hugsað sem einskonar betrunarheimili fyrir þær konur sem þóttu hafa glatað trausti drottins með sínu "ósiðlega" líferni. Þetta er afar áhugaverð saga sem varpar sérstöku ljósi á aðstæður almennings á Spáni á síðari hluta átjándu aldar.
    Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon

    Vefverslun Drauganna


    Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    • 1 hr 18 min
    #167 Ísrael - Palestína 3. þáttur - Intifada, PLO, Hamas og Hezbollah

    #167 Ísrael - Palestína 3. þáttur - Intifada, PLO, Hamas og Hezbollah

    Árið 1987 sauð upp úr á Vesturbakkanum og Gaza. Ísraelar höfðu stóraukið umsvif á landnemabyggðum og hert mjög allt eftirlit. Palestínumenn hófu að kasta grjóti og var svarað með kúlnahríð. Í kjölfar þessarra átaka minnkaði mjög stuðningur við PLO en öfgafull samtök múslíma sem kölluðu sig Hamas fengu mikinn meðbyr. Í Líbanon fór að bera meira á herskárri hreyfingu sem kallast Hezbollah. Í þessum þætti ljúkum við yfirferð okkar um þessa hatrömmu deilu fyrir botni Miðjarðarhafs. Við skoðum helstu samtök sem mest hefur borið á í baráttunni gegn Ísrael. Við veltum því einnig fyrir okkur hvernig framtíðin gæti orðið á þessu svæði. Aðeins er rúmur mánuður frá því að Ísrael upplifði sinn blóðugasta dag í þessarri deilu síðan 1948. Því miður virðist sem raddir hinna hófsömu séu orðnar veikar, jafnt hjá Ísraelum og Palestínuaröbum.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon

    Vefverslun Drauganna


    Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    • 2 hrs 16 min
    #166 Ísrael - Palestína 2. þáttur - Stríð á stríð ofan

    #166 Ísrael - Palestína 2. þáttur - Stríð á stríð ofan

    Ísraelsríki var stofnað í maí 1948 og hóf tilveru sína strax með því að berjast hatrammlega fyrir henni. Aðeins fáum klukkustundum eftir að sjálfstæðisyfirlýsingin var tilkynnt, réðust herir frá Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon og Írak inn í landið. Ísrael var þá að mestu án öflugra vina en nú sárvantaði þá vopn og verjur. Aðeins voru til vopn fyrir einn hermann af þremur. Í snarhasti tókst að kaupa vígtól frá Frakklandi og Tékkóslóvakíu. Ísrael var fljótt að snúa vörn í sókn og hrinti árás Arabaríkjanna. Í þessum þætti munum við einnig skoða mikilvæg átök sem fylgdu í kjölfarið og spannar þátturinn að mestu árin 1948 - 1982. Hér verða einnig útskýrð heiti sem nánast allir  á fullorðinsaldri hafa einhverntíma heyrt í fréttum: Gaza, Golan-hæðir og Vesturbakkinn.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon

    Vefverslun Drauganna


    Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    • 1 hr 49 min

Customer Reviews

4.9 out of 5
561 Ratings

561 Ratings

Arnrun ,

Eðall🤌

Fyrir þau sem ekki eru búin að fatta þetta eðal hlaðvarp og hafa ekkert að gera í sumarfríinu eða langar í félagsskap í göngutúrum, matseld, màlun eða arfa reiti....þá eru þetta feel good snillingar með fræðandi, skemmtandi og öðruvísi umfjöllun um oft sjaldnefnda sögulega atburði, hluti og persónur í bland við hressandi spjall um ömurleika tilverunnar, fegurð lífsins og kjaftæðið í veröldinni. Mæli eindregið með 👌 Mínir uppáhalds þættir hingað til eru: Nr.4 sjóveikir breskir drengir hernema Ísland 1940 Nr.10 Stelpur í stríði. Nr.104 Harmsaga ævinni minnar. Nr.113 Hin djöfullega skelfing. Og margir, margir fleiri....

EG R ,

Gott dúó

Takk! Baldur og Flosi hafa náð að búa til einstakt dúó sem ná að gera nánast allt áhugavert - frá stórum atburðum til hinna smæstu. Það er virkilega þakkarvert að eiga þessa þætti á handraðanum, suma aftur og aftur.

HanniLalli ,

Larry

Skemmtileg umræða um hin ótrúlegustu málefni með dass af þunglyndi og athyglisbrest. Áhugaverð blanda sem má ekki missa af.

You Might Also Like

Í ljósi sögunnar
RÚV
Eftirmál
Tal
Morðcastið
Unnur Borgþórsdóttir
Morðskúrinn
mordskurinn
Beint í bílinn
Sveppalingur1977
70 Mínútur
Hugi Halldórsson