18 min

Endurforritun taugakerfisins: Vinna með innra barnið‪.‬ INNÁVIÐ

    • Self-Improvement

Í þessum þætti fjalla Bjarni Snæbjörnsson og Jóhanna Jónasar áfram um hvernig við getum Vaknað til betra lífs út frá hugmyndum um þakklæti og þakklætisiðkun.  Hér fjalla þau um endurforritun taugakerfisins og mikilvægi þess í allri sjálfsvinnu og vakningu. Hvernig með ákveðnum aðferðum er hægt að endurforrita hvernig við horfum á lífið og hver raunveruleiki okkar er. Grunnhugmyndina má finna í fræðum um innra barnið og hvernig ósjálfráða kerfið okkar og undirmeðvitundin er mótuð á fyrstu árum ævinnar. Þau fara yfir hvers vegna er mikilvægt að fara í þessa endurforritun á okkar innri hugformum, eða innra barni til þess að geta lifað heilbrigðu og hamingjusömu lífi. Þátturinn er stútfullur af upplýsingum um þessa vinnu, hvernig má gera hana á alls konar vegu og hvers vegna hún er mikilvæg. Jafnframt ræða þau um mikilvægi þess að átta okkur á hvaða heilabylgjur ráða í okkar daglega lífi og hvernig við getum haft meiri áhrif á það hvernig okkar daglega líf lítur út og hvernig þakklætisiðkun hefur jákvæð áhrif á þessa endurforritun. Jóhanna ræðir jafnframt um áhrif þess að fara á fjölmenna og streitumikla staði eins og Kringluna og hvernig við getum átt jákvæða upplifun af því að fara inn í streitumikið umhverfi með þakklætisiðkun og endurforritun taugakerfisins.

Í þessari seríu VAKNAÐ TIL BETRA LÍFS Innávið x Jóhanna Jónasar er áherslan sett á þakklæti og þakklætisiðkun. Hvað gerist þegar við opnum hjartað og lifum út frá hjartanu og hvernig getum við gert það á heilbrigðan hátt og út frá tengingu við okkur sjálf.

Fylgið okkur:

Vaknað til betra lífs: https://www.instagram.com/vaknadtilbetralifs/

Innávið: https://www.instagram.com/inn.a.vid/

Bjarni Snæbjörnsson: https://www.instagram.com/bjarni.snaebjornsson/

Jóhanna Jónasar: https://www.facebook.com/brennanheilunjohannaj/