#S2-08 Guðmundur Smári Gunnarsson - Valhöll range-boltanna: Dans, golf, gervigreind og einlendu tegundirnar

Í þessum þætti mætir Guðmundur Smári Gunnarsson. Við ræðum hvernig flókin mannleg færni mótast í taugakerfinu og hvernig líkamsvitund nýtist jafnt í dansi, flugveiði og golfi. Magnús deilir tilraun sinni þar sem hann notar gervigreind til að greina Trackman-gögn og hreyfimyndbönd til að endurbyggja golfsveifluna. Saman velta þeir upp „prompt-prófi“ Guðmundar um einlendu dýrin á Íslandi, „2026-stimplinum“ sem frystir vinnustaði í fortíðinni og húmor tækninnar gagnvart range-boltum á leið til Valhallar.