Karfan Karfan
-
- Deportes
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
-
Aukasendingin: Fréttir vikunnar, úrslitin í Subway og heitasta slúðrið
Aukasendingin fékk Árna Jóhannsson og Siggeir Ævarsson blaðamenn til þess að fara yfir úrslitin í Subway deildunum, leikmenn erlendis, fréttir vikunnar og heitasta slúðrið. Þá er einnig farið yfir nokkrar skemmtilegar línur sem þjálfarar og leikmenn hafa látið útúr sér á síðustu árum, sem og hvar Siggeir væri helst til í að búa.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.
-
Aukasendingin: Arnar um Stjörnuárin, Reykdæli og framtíð Íslands
Aukasendingin fékk fyrrum þjálfara Stjörnunnar Arnar Guðjónsson í spjall um tímann sinn hjá Stjörnunni, þar sem hann hafði verið frá árinu 2018 áður en hann ákvað að halda á önnur mið eftir yfirstandandi tímabil. Nú í sumar mun hann taka við sem afreksstjóri hjá KKÍ og því vera yfir landsliðsverkefnum Íslands. Ásamt því að ræða tíma sinn í Garðabænum fer Arnar vel yfir stöðu deildanna á Íslandi, úrslit Subway deildanna, meintan hrepparíg í Borgarfirðinum, ár sín með landsliðinu, framtíð Íslan...
-
Aukasendingin: Þjálfarakapallinn, auðmjúkur Kane og ÍR aftur í Subway
Aukasendingin fékk Mumma Jones til þess að ræða úrslitakeppni Subway deilda karla og kvenna, fyrstu deilda karla og kvenna, leikmenn erlendis, fréttir vikunnar og margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
-
The Uncoachables: Lots of Misunderstandings
Helgi, David and Jeanne welcome summer and the playoffs have begun! We begin by going over the end of the regular season and then move on to all playoffs rounds being played in all senior divisions (Subway leagues, 1st and 2nd division on both sides). Towards the end we discuss the beginning of the silly season and what this summer holds. Enjoy!Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne SicatThe Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.
-
Tvígrip: KR í brasi, spútniklið Skagamanna & Örlygur Sturluson
Tvígrip - karfan kortlögð 1997-199817 ára Grikki mætir í Grindavík, KR-ingar í brasi, dómarar vildu fá meira borgað. Skagamenn koma á óvart í úrslitakeppninni, Hrannar Hólm á línunni frá Köben ásamt Hermanni Hauks sem hélt í atvinnumennskuna. Grindvíkingar ráku sinn besta mann og við heyrum í Örvari varðandi Örlyg Sturluson. Þetta og fullt af öðru í Tvígrip karfan kortlögð. Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.
-
Aukasendingin: Bensínlausir Stólar, nýliðasigrar og taktík þjálfara í viðtölum
Aukasendingin fékk Sæbjörn Steinke og Guðmund Auðunn í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, úrslitakeppni Subway deilda karla og kvenna, úrslitakeppni fyrstu deilda karla og kvenna, sigur KV í annarri deildinni og og margt, margt, margt fleira. Þá fer Guðmundur undir lokin yfir fimm uppáhalds Keflvíkingana sína frá upphafi.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.