164 afleveringen

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Lestin RÚV

    • Maatschappij en cultuur

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

    Gervigreindar-Lestin #3-4: Hver á raddirnar okkar?

    Gervigreindar-Lestin #3-4: Hver á raddirnar okkar?

    Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind. Vinnan er komin vel á veg þegar þau fá fréttir af því að amerískur hlaðvarspþáttur sé kominn út, þáttur sem er nákvæmlega eins upp byggður og þeirra þáttur. Þau ákveða að reyna að komast að því hvort hugmyndinni hafi verið stolið eða hvort allir séu að fá sömu hugmyndirnar. Vinna hefst við gerð talgervla með þeirra rödd og í kjölfarið vakna margar spurningar.

    • 55 min.
    Gervigreindar-Lestin #5-6: Hversu greind er gervigreindin?

    Gervigreindar-Lestin #5-6: Hversu greind er gervigreindin?

    Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind. Í þessum þætti tekur gervigreindin viðtöl við mennsku viðmælendurnar, Kristján og Lóa reyna að finna tónlist í þáttinn, sem þarf auðvitað að vera samin af gervigreind. Þau fá svör, ekki öll svörin kannski, en einhver svör, við stóru spurningum sínum um gervigreind. Og svo er ekkert eftir nema að senda þáttinn til yfirferðar hjá tæknimanni, Lydíu Grétarsdóttur.

    Í þessari seríu höfum við verið að nota tónlist eftir íslensku hljómsveitina Konsulat og bandarísku tónlistarkonuna Jlin.

    • 55 min.
    Fyrsti gervigreindarþáttur í íslenskri útvarpssögu

    Fyrsti gervigreindarþáttur í íslenskri útvarpssögu

    Í Lestinni í dag: Þróun tónlistarstreymiþjónustu, ljósmyndakonan Saga Sig og nýja plata Sigur Rósar, 'Átta'

    Við skoðum þróun tónlistarstreymiþjónustu og hvernig hún hefur haft áhrif á tónlistariðnaðinn og háttinn sem við njótum tónlistar í dag. Við ræðum bæði jákvæð og neikvæð hliðar þessara áhrifa. Við mælum með sérfræðingum um hvernig þessar þjónustur hafa mótað borgararéttindi listamanna, demókratiseringu tónlistarsköpunar og aðgang að henni, og hvernig þessi umhverfi mótar hlustunarvenjur okkar og menningu í tónlist.
    Í dag munum við kynna okkur Saga Sig, ljósmyndara sem hefur blandað saman myndlita og ljósmyndalist í sitt eigið, einkennandi verk. Saga lauk námi í London College of Fashion árið 2007, flutti til London frá Íslandi til að skoða heiminn í gegnum linsuna. Verk hennar hafa verið sýnd víðsvegar, frá London til New York, Paris og Tokyo, og hafa þau birtst í blöðum sem Dazed & Confused, i-D, Vogue Italia og The Guardian. Viðtalið mun snúast um Saga, hvernig hennar draumkennda ljósmyndun hefur mótast af bókmenntum, menningu og lífi í erlendum borgum.

    Hvernig skilja við nýjustu plötu Sigur Rósar, 'Átta'?
    Stormur Steinþór Sveinsson, tónlistarfræðingur, hefur nokkrar hugmyndir. Í pistli sínum í dag, skoðar Stormur Steinþór ítarlega nýjustu verk Sigur Rósar, veltir fyrir sér áhrifum þeirra á íslenska tónlistarmenningu og útskýrir hvernig Sigur Rós hafa þroskaðst sem listamenn.

    • 55 min.
    Hrollvekjur, hvalveiðimótmæli, tónlist Góða hirðisins

    Hrollvekjur, hvalveiðimótmæli, tónlist Góða hirðisins

    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, fór í bíó á dögunum og sá tvær hrollvekjur, hina áströlsku Talk to me sem fjallar um hóp unglinga sem læra að kalla fram illa anda, en þegar ein í hópnum gengur of langt fer allt úr böndunum. Og svo norður-makedónsku myndina You won?t be alone um unglingsstúlku sem dvalið hefur í helli alla sína ævi en þegar henni er breytt í norn þarf hún að læra að fóta sig í heimi okkar mannanna.

    Við kíkjum niður á höfn og fylgjumst með aðgerðum hvalveiðiandstæðinga. Tvær konur höfðu komið sér fyrir í möstrunum á Hval 8 og Hval 9 til að hindra að skipin fari út að veiða.

    Að lokum förum við í nytjamarkaðinn Góða hirðinn, ekki til að finna fjársjóð innan um allt dótaríið heldur til að heyra hvernig allt dótaríið hljómar. Listamaðurinn Halldór Eldjárn dvaldi í Góða hirðinum allan laugardaginn og samdi tónlist á staðnum með hljóðum, hljóðfærum og hlutum sem hann fann í versluninni.

    • 55 min.
    Systur í bræðralaginu, Wayne Shorter og Blóðuga líf

    Systur í bræðralaginu, Wayne Shorter og Blóðuga líf

    Á dögunum leit bókin Sisters of the brotherhood: Alienation and Inclusion in Learning Philosophy, dagsins ljós hjá Springer forlaginu. Bókin fjallar um feminískar nálganir í heimspekikennslu en höfundur hennar, hin finnska Erika Ruonakoski, vann bókina meðal annars upp úr sumarskólum sem haldnir voru af samstarfsverkefninu Kyn og heimspeki. Elsa Haraldsdóttir, heimspekingur og verkefnastjóri verkefnisins segir frá bókinni og hugmyndunum sem þar koma fram.

    Heimildarmynd í þremur hlutum um bandaríska saxófónleikarann Wayne Shorter kom út á Amazon Prime á dögunum. Shorter lék meðal annars með seinni kvintett Miles Davis 63-68 og á tímamótaplötunni Bitches Brew frá 1970. En hann átti einnig farsælan sólóferil sem gerð eru skil í heimildaþáttunum Wayne Shorter: Zero Gravity. Shorter lék á Listahátíð í Reykjavík árið 2008 og í tilefni af því ræddi Guðni Tómasson við þá Óskar Guðjónsson og Jóel Pálsson í Víðsjá. Við rifjum upp spjall þeirra félaga.

    Við heyrum svo af sýningu the Gjörningaklúbbsins í Gallery Guðmundsdóttir í Berlín. Það er Steindór Grétar Jónsson sem mun gera íslensku listafólki í Berlín skil næstu vikurnar, svo fylgist með.

    • 55 min.
    Fiðluteknó Geigen, Rauða bókin hans Jung og Forest Swords

    Fiðluteknó Geigen, Rauða bókin hans Jung og Forest Swords

    Fiðluteknótvíeykið Geigen sem er skipað þeim Gígju Jónsdóttur og Pétri Eggertssyni, þau fagna útgáfu tveggja platna með tónleikum í Iðnó annað kvöld. Tónlist Geigen verður til inni í skálduðum vísindasagnaheimi úr þeirra eigin ranni og flutningur hennar tekur oftar en ekki á sig mynd gjörnings eða sýningar, nú síðast með Íslenska dansflokknum, en samstarfssýning þeirra Geigengeist sem sett var upp í Borgarleikhúsinu í fyrra vann til þriggja Grímuverðlauna, meðal annars fyrir tónlist ársins.

    Rauða bókin er ferðalag eins merkasta geðlæknis 20. aldarinnar um eigin dulvitund. Rauða bókin er skrautskrifuð og myndskreytt bók sem Carl Gustav Jung dundaði sér við í 16 ár á fyrri hluta síðustu aldar. Anna Gyða Sigurgísladóttir skoðaði sögu þessa merka verks í Lestinni 2018 og við ræddi við Hallfríði J. Ragnheiðardóttur, sem þekkir vel til verka Jungs.

    Ný plata er væntanleg frá tónlistarmanninum Matthew Barnes sem kallar sig Forest Swords, sú fyrsta frá árinu 2017. Barnes sver sig í ætt við James Blake, Burial og Four Tet og tónlist hans kallar upp myndir af öllu og engu í senn, það er hægt að hlusta á hana aftur og aftur, í nýju samhengi og nýjum aðstæðum, með athygli eða fjarrænum eyrum. Í lok þáttar heyrum við nokkur lög af plötunni sem heitir Bolted og kemur út í október.

    • 55 min.

Top-podcasts in Maatschappij en cultuur

Aaf en Lies lossen het wel weer op
Tonny Media
De Jortcast
NPO Radio 1 / AVROTROS
Het Uur
NRC
De Jongen Zonder Gisteren
NPO Luister / WNL
Nooit meer slapen
NPO Radio 1 / VPRO
Argos
NPO Radio 1 / HUMAN / VPRO

Suggesties voor jou

Í ljósi sögunnar
RÚV
Ólafssynir í Undralandi
Útvarp 101
Þjóðmál
Þjóðmál
Chess After Dark
Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson
Þarf alltaf að vera grín?
Þarf alltaf að vera grín?
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
Helgi Jean Claessen