Ólafssynir í Undralandi Útvarp 101
-
- Komedie
-
Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!
-
Steinunn Ólína í Undralandi
Já kæru hlustendur, það er hún Steinunn Ólína sem er gestur Undralandsins að þessu sinni. Við Ólafssynir spurðum hana spjörunum úr en nú stendur hún í framboði til embættis forseta Íslands og því var óneitanlega freistandi að fara aðeins yfir samfélagsmálin í bland við persónulegri málefni. Eigið yndislegan sunnudag kæru Undralendingar!
-
Truflaðar tilviljanir
Ótrúlegt en satt, þá undirbjuggu Ólafssynir sig fyrir þátt dagsins. "Truflaðar tilviljanir" var rauði þráðurinn í þættinum en að sjálfsögðu fylgir meira rugl með í kaupæti. Góðar stundir gott fólk.
-
-
Stress & tilviljunarkenndir atburðir
Kæru Undralendingar - gleðilegan sunnudag! Þáttur dagsins er spjall um hitt og þetta en þó að mestu leiti um stress og tilviljunarkennda atburði. Aron varð helvíti stressaður í vikunni sem leið og því bar að krifja það til mergjar. Svo eru það tilviljunakenndu atburðirnir sem farið verður yfir í þættinum en þeir eru svo tilviljunarkenndir að það meikar engan sens. Góða hlustun kæru vinir.
-
Aron reynir fyrir sér í uppistandi
Já kæru hlustendur, þið lásuð rétt. Aron er á leiðinni í uppistandið. Við skulum bara vona að við missum hann ekki úr Undralandinu þegar hann verður kominn með sína eigin Netflix mynd um uppistandið sitt. Verið góð við hvort annað.
-
Viðar Pétur sérfræðingur í gervigreind skólar Ólafssyni til
Það var löngu kominn tími á að fá sérfræðing inn í begmálshelli Ólafssona til að ræða gervigreind á fagmannlegum nótum, en til þess fengum við til okkar Viðar Pétur Styrkársson sérfræðing í gervigreind frá Advania. Við spurðum hann spjörunum úr um allt það nýja á döfinni, siðferðið og framtíðarhorfur í heimi þar sem gervigreind virðist ætla að taka yfir. Missið ekki af þessum þætti kæru hlustendur!
Customer Reviews
Yndis⭐️
Geggjaðir þættir… allskonar fróðleikur sem ég vissi ekki að ég hefði gaman af… en þeir eru snillingar í að koma pælingum sínum og fróðleik frá sér á skemmtilegan hátt. Eftir fyrsta þátt fóru þið beint í subscribe hjá mér!! Ps. Ég verð að vera Team ADHD/Aron 🙋🏼♀️en allir adhd hausar þurfa samt að eiga einn Arnar til að koma þeim á jörðina inn á milli 😂