Happy Hour Viceman
-
- Society & Culture
Hæ Andri Viceman hérna....
Happy Hour er hlaðvarp þar sem ég tala við skemmtilegt og áhugavert fólk úr veitingageiranum um málefni tengd veitingabransanum.
Have fun & stay happy
-
74. Aðalgeir Ásvaldsson hjá Sveit - Slæm staða hjá veitingahúsum landsins
Aðalgeir hjá Sveit hagsmunasamtökum veitingahúsa á Íslandi hefur verið óhræddur við að benda á stöðuna í fjölmiðlum undanfarið enda augljóst að útlitið sé svart og ef ekkert verður gert í málunum séum við hreinlega að fara að horfa á eftir uppáhalds veitingastöðunum okkar.
-
73. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir - Kokkalandsliðið, keppnis matreiðsla ofl.
Í þessum Comeback þætti af Happy Hour spjallaði ég við Snædísi, fyrirliða kokkalandsliðsins.
Hæfileikarnir í matargerð leyna sér ekki og hafa án efa komið henni langt enda er hún í dag þjálfari Kokkalandsliðsins og hefur unnið sig þar upp undan farin ár.
Það eru samt ekki bara hæfileikarnir sem hafa komið henni á stall þeirra bestu í matreiðslu, að baki liggur mikill tími, metnaður, ástríða í bland við vinnusemi. fórnir, dass af þrjósku og mikið keppnisskap.
Upphafsstef: Prikó - ADHD
Styrktaraðilar: Fentimans & Töst
IG @theviceman -
Gísli Matt - SLIPPURINN 10 ára ofl - 72
Í þessum þætti átti ég frábært spjall við Gísla Matt sem er einn áhrifamesti kokkur landsins þegar kemur að Íslenskri matargerð. Gísli rekur veitingastaðinn SLIPPURINN í Vestmannaeyjum og opnaði nýverið systur staðinn NÆS
Ef þú hefur áhuga á matargerð, drykkjargerð, sjálfbærni, hráenfum framtíðarinnar og góðu bransaspjalli þá ættir þú að hlusta á þennan þátt.
Ekki gleyma að fylgja mér á instagram: @theviceman -
Jacob & Bo - Sparkling Tea - 71
Í þessum þætti átti ég gott spjall við þá Jacob og Bo frá Sparkling Tea.
Óhætt er að segja að Sparkling Tea hafi slegið í gegn á Íslandi enda frábær freyðandi drykkur sem fáanlegur með og án áfengis.
Hvað er Sparkling tea? hvernig er það búið til? og hvernig varð hugmyndin að þeirri vöru sem hún er í dag?
Því verður öllu svarað og meira til í þessum þætti.
Ekki gleyma að fylgja mér á instagram: @theviceman -
Gregory Buda frá Dead Rabbit NY - 70
Í þessum þætti átti ég frábært spjall við Gregory Buda sem er Director of education hjá Dead Rabbit í New York. Dead Rabbit er á meðal bestu cocktail bara í heiminum.
Greg átti leið hjá og ákvað að stoppa við á Íslandi til að halda fyrirlestur fyrir barþjóna landsins og er óhætt að segja að það hafi verið vel mætt. Að auki hélt hann Pop up ásamt Brennivín á kokteilabarnum Jungle.
Ekki gleyma að fylgja mér á instagram: @theviceman -
Erpur og edrúmennskan - 69
Já þetta er rétt. Í þættinum ræða Erpur og Viceman um edrúmennskuna ásamt því að drekka óáfenga kokteila.
Meira um vörurnar sem voru smakkaðar má finna á www.akkurat.is
Endilega fylgið @theviceman á instagram