20 episodes

Hoobla er samfélag sjálfstætt starfandi sérfræðinga, stjórnenda, ráðgjafa, stjórnenda- og markþjálfa og fyrirlesara. Í Hoobla PodCastinu heyrum við allt um það hvað er að virka og hvað ekki þegar þú ert sjálfstætt starfandi.

Hoobla PodCasti‪ð‬ Hoobla

    • Økonomi

Hoobla er samfélag sjálfstætt starfandi sérfræðinga, stjórnenda, ráðgjafa, stjórnenda- og markþjálfa og fyrirlesara. Í Hoobla PodCastinu heyrum við allt um það hvað er að virka og hvað ekki þegar þú ert sjálfstætt starfandi.

    18# Ingibjörg Reynisdóttir, sölu- og þjónustuþjálfi, markþjálfi og leiðtogi að láni

    18# Ingibjörg Reynisdóttir, sölu- og þjónustuþjálfi, markþjálfi og leiðtogi að láni

    Í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí ræðir Harpa við Ingibjörgu Reynis, sem er ein af reynslumestu sérfræðingum landsins á sviði sölu- og þjónustu. Hún hefur komið inn í fjölmörg fyrirtæki til að þjálfa fólk í að veita góða framlínuþjónustu og góða þjónustusvörun. 
    Það að búa til jákvæða upplifun viðskiptavina er það sem Ingibjörg brennur fyrir. Í þættinum ræðir hún og gefur góð ráð um hvernig fyrirtæki geta endurhugsað þjónustu sína og veitt betri þjónustu.Ef skapað er tilgangsríkt starfsumhverfi þar sem horft er til styrkleika fólks og því veitt jákvæð athygli og jákvæður stuðningur í að veita betri þjónustu, þá geta fyrirtæki náð að búa til meira traust og betri ímynd. Góð þjónusta býr til jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini og fyrir starfsmenn og styður við vöxt fyrirtækisins. 
    Við þökkum Ingibjörgu fyrir gott spjall. 
    ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is
    - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw
    - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ
    -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla
    - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial
    - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic...
    -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

    • 52 min
    Jóhann Guðbjargarson, frumkvöðull, stofnandi og framkvæmdastjóri PLAIO

    Jóhann Guðbjargarson, frumkvöðull, stofnandi og framkvæmdastjóri PLAIO

    Jóhann, eða Jói eins og hann kallar sig, stofnaði fyrirtæki sitt PLAIO árið 2021. PLAIO fékk væna fjármögnun í árslok 2021 og hefur nú tryggt sér fjármagn til að hægt sé að halda áfram með hugmyndina og byggja upp öflugt fyrirtæki. Hann lýsir þeirri vegferð sem hann hefur upplifað frá því hann fór af stað með hugmynd sína og gefur góð ráð varðandi hvernig er gott að komast áfram með góða hugmynd. Hann talar um mikilvægi teymisins og mikilvægi góðrar kynningar á hugmyndinni. Hann er talsmaður þess að fara út fyrir þægindarammann til að ná árangri í lífinu. Ef maður er stöðugt inni í þægindarammanum takmarkar maður möguleika sína. 
    Takk Jói fyrir mjög áhugavert spjall um vegferð nýsköpunarfyrirtækisins PLAIO.  
    ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is

    • 49 min
    16# Matti Ósvald - Atvinnumaður í að styðja fólk til árangurs og jafnvægis í lífi og starfi

    16# Matti Ósvald - Atvinnumaður í að styðja fólk til árangurs og jafnvægis í lífi og starfi

    Matti Ósvald er gestur Hörpu í þessum 16. þætti Hoobla PodCastsins. Hann hefur um áratugaskeið nýtt aðferðir heildrænna heilsufræða og markþjálfunar til að styðja við fólk á öllum stigum samfélagsins. Hann vinnur með einstaklingum og stjórnendum fyrirtækja. Hann vinnur með íþróttafélögum og heldur fyrirlestra auk þess sem hann hefur unnið um árabil með Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Viðtalið er einlægt og Matti deilir með okkur þeirri sýn sem hann hefur á lífið og tilveruna.
     
    ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is

    • 1 hr 16 min
    15# Agnar Kofoed-Hansen, stjórnendaráðgjafi á sviði fjármála og reksturs.

    15# Agnar Kofoed-Hansen, stjórnendaráðgjafi á sviði fjármála og reksturs.

    Í þessum 15. þætti Hoobla PodCastsins ræðir Harpa við Agnar Kofoed-Hansen.
    Agnar hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu, hefur komið að rekstri fjölbreyttra fyrirtækja, setið í stjórnum og veitt stjórnendaráðgjöf. Agnar hafði meðal annars frumkvæði að stofnun fyrirtækjanna Greiðslumats, Upplýsingaþjónustunnar og fyrsta faktoring fyrirtækisins á Íslandi. Hann er frumkvöðull af lífi og sál.
    Í dag situr hann í stjórnum tveggja sprotafyrirtækja, styrktarsjóði og lífeyrissjóði. Í þessum þætti segir hann okkur aðeins frá sinni reynslu, talar um vegferð sprotafyrirtækja, hvernig dauðadalurinn getur gert út af við sprotafyrirtæki og gefur ýmis góð ráð. Agnar talar um mikilvægi góðra fyrirmynda, við þurfum ekki að vera með minnimáttarkennd, fólk er bara fólk, verum hugrökk og ánægð með það sem við höfum. Gerum okkar besta! Höldum áfram og gefumst ekki upp!
    Takk fyrir gott spjall Agnar!
     
    ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is
    - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw
    - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ
    -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla
    - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial
    - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic...
    -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

    • 52 min
    14# - Kolbrún Magnúsdóttir, markþjálfi og mannauðssérfræðingur

    14# - Kolbrún Magnúsdóttir, markþjálfi og mannauðssérfræðingur

    Í þessum 14. þætti Hoobla PodCastsins ræðir Harpa við Kolbrúnu um hvernig það er að takast á við atvinnumissi, byrja að gigga sem sjálfstætt starfandi mannauðssérfræðingur, markþjálfunarnámið, markmiðasetningu og margt margt fleira. Kolbrún hefur tekist á við ýmsar áskoranir, eins og við öll. Hún deilir með okkur hversu miklu máli jákvætt viðhorf og húmor skipta í lífi og starfi. Covid hafði þau áhrif á atvinnurekstur Bláa Lónsins að hún missti starf sitt sem fræðslustjóri. Hún lýsir því hvernig það var að stökkva út í djúpu laugina og fara að starfa sjálfstætt í kjölfarið, sem var talsverð áskorun og hún fann klárlega fyrir ótta. En það er allt hægt ef maður er með jákvætt hugarfar og lætur óttann ekki stoppa sig.
    Í þessu viðtali fáum við að kynnast Kolbrúnu og hennar reynslu!
    Takk fyrir virkilega fróðlegt og einlægt viðtal Kolla.
    ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is
    - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw
    - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ
    -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla
    - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial
    - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic...
    -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

    • 45 min
    13# Silla Páls ljósmyndari. Ljósmyndarinn sem fangar augnablikin

    13# Silla Páls ljósmyndari. Ljósmyndarinn sem fangar augnablikin

    Silla Páls er ljósmyndari sem tekur allar gerðir ljósmynda.
    Hún segir sjálf að hún sé svo þakklát fyrir að fá að vera með fólki á mikilvægum augnablikum í lífi þess. Það er einstakt að fá að fanga mikilvæg augnablik í lífi fólks og deila tilfinningum þeirra á því augnabliki. Það er kannski ekki síst því að þakka því að hún er næm fyrir persónuleika fólks, nær að fá fólk til að slappa af og þannig nær hún því besta fram í fólki og það sést á myndunum.
    Silla hefur gert ýmislegt um ævina, verið á sjó, keyrt gröfu o.fl., en ljósmyndun er hennar ástríða. Hún er ljósmyndari af lífi og sál!
    Í þessu viðtali fáum við að kynnast Sillu og hennar reynslu! Takk fyrir gott spjall Silla.
    ⭐️ - Vefsíða Hoobla https://hoobla.is
    - Spotify: https://open.spotify.com/show/717uLSl9tsa87SqRASFBTr?si=55B8zQ89Tni77_gRaURyiw
    - Youtube: https://www.youtube.com/channel/UCjKwiRDNJTd1yg44_0m8EjQ
    -Linkedin: https://www.linkedin.com/company/hoobla
    - Facebook https://www.facebook.com/hooblaofficial
    - Instagram https://www.instagram.com/hooblaoffic...
    -Tiktok https://https://www.tiktok.com/@hoobl...

    • 44 min

Top Podcasts In Økonomi

In Good Company with Nicolai Tangen
Norges Bank Investment Management
Dine Penger - Pengerådet
Dine Penger
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett
DOAC
Pengesnakk
Moderne Media
Økonominyhetene
Finansavisen
Pengetabu
DNB