63 avsnitt

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.

Fjölskyldan ehf‪.‬ Margrét Pála og Móey Pála

    • Utbildning
    • 5,0 • 1 betyg

    Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!

    Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!

    Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um söguna og hvaða merkingu það hefur haft fyrir konur. Einlægt og hjartnæmt spjall að vanda.
    Katla er nú orðin 10 ára og sér að sjálfsögðu um kynningu og lokaorð. Nú veltir hún fyrir sér systkinastjórnun!
    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    • 38 min
    Í fréttum er það helst

    Í fréttum er það helst

    Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging. 

    Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi nálægt hver annarri og hvernig það styrkir uppeldið og fjölskylduböndin sem verða svo sterk. Það reynir þó að sjálfsögðu á samskiptin þegar margir koma að uppeldi ungra barna og þær opna það samtal fyrir hlustendum. 
    Þær ræða auðvitað það sem er efst á baugi hjá öðrum í fjölskyldunni en verkefnin eru ólík sem þau fást við, sum gleðileg og önnur afskaplega krefjandi.
    Snillingurinn Katla sér auðvitað um kynningu og lokaorð en gleymir ekki að segja frá sínum helstu fréttum. 

    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. 
    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    • 37 min
    Björkin fæðingarheimili

    Björkin fæðingarheimili

    Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn á ferli fæðinga.

    Ayon Rúnar drengur Móeyar og Davids fæddist í Björkinni og þær ræða fæðinguna sem bar mjög fljótt að. Að sjálfsögðu færist talið fram og aftur í tíma og um víðan völl en rauði þráðurinn er auðvitað þetta stórkostlega ferli sem fæðingin er og jafnréttisvinkillinn er aldrei langt undan.

    Hin 10 ára Katla kynnir þáttinn og á dásamleg lokaorð að vanda; þetta verkefni er auðvitað stórt og mikið í hugum allra, hvað þá í augum barna!

    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    • 54 min
    Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál

    Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál

    Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis.

    Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að  leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hætt við að minnka hávaða í fjölskyldurýmum með snjalltækjum og heyrnatólum. Hvaða áhrif getur sú lausn haft?

    Tungumálið og talmeinafræði eru einnig tekin fyrir í spjallinu og mikilvægi þess að móðurmál barna sé þeirra fyrsta mál. 
    Það er í raun fátt sem er þeim stöllum óviðkomandi en þær ræða einnig heyrnaleysi, táknmál og sitthvað fleira.
    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    • 35 min
    Svarthvíta regnbogafjölskyldan

    Svarthvíta regnbogafjölskyldan

    Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi. 
     
    Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hægt að gera til að láta ganga betur. 

    Mágkonuspjallið er í anda fjölskyldunnar; beint frá hjartanu, með heiðarleika og hreinskiptni að vopni með hárnákvæmu dassi af húmor.

    Hvað er það sem við þráum öll sama hverjir foreldrar okkar eru, hverja við elskum eða hvernig við lifum lífinu? 

    Mikilvægt samtal nú sem endranær.
    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    • 53 min
    ,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"

    ,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"

    Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum.

    Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá tilfinningagreind og hvernig skjárinn yfirtekur augu og athygli okkar allra fyrirstöðulaust. Einnig vekja þær máls á annars konar nálgun á tækni í skólum og hvernig er hægt að forðast boð og bönn.

    Hugvíkkandi samtal í takt við ört breytandi samtíma.
    Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.

    Fjölskyldan ehf á facebook

    Fjölskyldan ehf á Instagram

    Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com

    • 37 min

Kundrecensioner

5,0 av 5
1 betyg

1 betyg

Mest populära poddar inom Utbildning

The Subtle Art of Not Giving a F*ck Podcast
Mark Manson
Max Tänt med Max Villman
Max Villman
Sjuka Fakta
Simon Körösi
Livet på lätt svenska
Sara Lövestam och Isabelle Stromberg
The Jordan B. Peterson Podcast
Dr. Jordan B. Peterson
The Mel Robbins Podcast
Mel Robbins