81 episodes

Podcast by Knattspyrnufélagið Valur

Valur - Hljóðvarp Knattspyrnufélagið Valur

    • Sport

Podcast by Knattspyrnufélagið Valur

    SE06 - EP02

    SE06 - EP02

    Stutt og skorinort kvölddropp. Gósentíð í félaginu. Þvílíkt og annað eins. Stelpurnar okkar að fara í úrslitaeinvígið við Hauka á morgun, strákarnir unnu Njarðvík í körfunni í gær og leiða nú einvígið. Í fótboltanum kemur KA í heimsókn á afmælisdaginn á laugardag og stelpurnar voru suður með sjó í kvöld. Svo er það Afturelding í handboltanum og handan við hornið er úrslitaeinvígi um Evrópubikarinn við Olympiacos. Við fórum yfir allt þetta helsta en handboltinn var í fyrirrúmi. Sérfræðingurinn Arnar Daði var á línunni og við spáðum í úrslitakeppnirnar í Olís og hituðum fyrir Evrópuævintýrið sem er framundan. Í seinni hlutanum slógum við svo á þráðinn til Gústa Jó og hituðum fyrir úrslitaeinvígið í handboltanum kvennamegin, sem hefst á morgun á Hlíðarenda, þar sem við mætum Haukum. Mætum öll!

    • 31 min
    SE06 - EP01 - Björgvin Páll og Tommi Steindórs

    SE06 - EP01 - Björgvin Páll og Tommi Steindórs

    Þá rúllum af stað með nýtt season af Vængjum þöndum enda ærinn ástæða til, þegar allt er að fara á fullt í félaginu okkar. Við tókum upp í hádeginu í spánýju Kók-stúdíói og hlökkum til að færa ykkur þáttinn reglulega næstu misseri og allskyns skemmtilegt framundan. Það stendur til að stækka teymið á bak við Vængjum þöndum sem mun skila sér í enn betri gæðum og fleiri þáttum. Við fórum að sjálfsögðu yfir Tvíhöfða kvöldsins í körfunni og handboltanum, hituðum upp fyrir úrslitakeppnirrnar og ræddum vel og lengi um upphafið á fótboltasumrinu sem hófst um síðustu helgi. Fínn pakki fyrir spennandi kvöld framundan. Á línunni var hinn eini sanni Björgvin Páll og Tómas Steindórsson, körfuboltasérfræðingur.

    • 49 min
    SE05 - EP09 - Óskar Bjarni og Haukur Páll

    SE05 - EP09 - Óskar Bjarni og Haukur Páll

    Vængirnir hófu sig til flugs á ný og við tókum lauflétta yfirferð yfir það helsta sem hefur verið að gerast í okkar ástkæra félagi og þeir Haukur Páll og Óskar Bjarni á línunni. Gerist varla betra.

    Óskar talaði um stemninguna í Val þessa dagana en hann einbeitir sér nú fyrst og fremst að meistaraflokki karla meðan einn af okkar dáðustu sonum Anton Rúnarsson, fer fyrir yngri flokka starfinu. Það stoppaði ekki Anton í að vera á bekknum gegn HC Motor. Óskar fer vel yfir það einvígi og dagskrána í kringum leikinn. Það verður húllumhæ niðu í Val á laugardag og við endurvekjum Evrópukvöldin goðsagnakenndu frá því síðasta vetur.

    Siðan er það Haukur Páll sem er kominn í nýtt hlutverk sem aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar. Þeir félagar voru nýbúnir að stýra æfingu þegar við slógum á þráðinn. Við fórum yfir þessi kaflaskipti hjá Hauki, nýja starfið og fórum aðeins yfir þessu mögnuðu 13 ár sem hann hefur átt í Val.

    • 36 min
    SE5 - EP09 - Sá besti í sumar og Patrick á línunni

    SE5 - EP09 - Sá besti í sumar og Patrick á línunni

    Í tilefni af lokum tímabilsins hjá karlaliðinu í fótbolta var blásið til uppgjörsþáttar í Vængjum þöndum. Við fengum góðan gest til að fara yfir sumarið. Jóhann Skúli kom einbeittur til leiks beint frá borg Englanna, Los Angeles. Við fórum aðeins yfir leik stelpnanna í í meistaradeildinni í gær áður en tekið var til við viðurkenningar. Hringborðið valdi besta leikmann sumarsins að sínu mati og sá var á línunni. Hlusta þarf til að komast að valinu. Þá var valið fallegasta markið, óvæntasta hetjan, besti leikurinn og fleira og fleira. Í lokin heyrðum við í Patrick okkar Pedersen en þær gleðifréttir bárust fyrir skömmu að hann ætlaði að vera hjá okkur næstu tvö árin. Við stefnum svo á svipað uppgjör kvennamegin í næsta þætti.

    • 44 min
    SE5 - EP08 - Gústi Jó og Finnur Freyr

    SE5 - EP08 - Gústi Jó og Finnur Freyr

    Stúdíó Borgó tók vel a móti löskuðum Vængjum en Jóhann Alfreð komst ekki vegna anna við upptaka a auglýsingu. En Benni og Breki settust niður og heyrðu hljóðið i okkar dásamlegu þjálfurum, Gústa Jóh og Finn Frey. Ágúst er að fara etja kappi við rúmenska ofurliðið Dunarea en stúlkurnar okkar stoðu vel i hárinu a stjörnupryddu liði. Finnur Frey var svo með sitt lið i generalprufu i leiknum meistarar meistaranna a Sauðárkróki og við hituðum upp fyrir spennandi vetur í körfunni með honum. Einnig fékk Patrik Pedersen sinn sess enda buin að jafna sjálfan Hemma Gunn i mörkum. Þa var farið yfir herrakvöldið sem verður fyrsta föstudag i nóvember.

    • 38 min
    SE5 - EP07 - Fanndís, Addi Grétars og Björgvin Páll

    SE5 - EP07 - Fanndís, Addi Grétars og Björgvin Páll

    Þvílíkur dagur fyrir þetta dropp! Við hófum okkur til flugs í hádeginu enda nóg um að vera í félaginu nú þegar handboltinn er kominn á fulla ferð. Við hreinlega lágum í símanum í tæpan klukkutíma. Slógum meðal annars á þráðinn til Fanndísar Friðriksdóttur og spurðum hana út í ferðalag stelpnanna til Albaníu, leikina þar og dráttinn á föstudag sem er framundan í Meistaradeild kvenna. Við ræddum líka lokasprettinn í Bestu deild kvenna en þegar við bjölluðum lá ekki fyrir að Fanndís og liðsfélagar færu á koddann í kvöld sem Íslandsmeistarar. Til hamingju stelpur, Pétur, Matti og þið öll!

    Breki og Benni gáfu skýrslu um leik Vals og FH í handboltanum á mánudagskvöld og við slógum í kjölfarið til Björgvins Páls, markmanns og nýs aðstoðarþjálfara og hleruðum hann um tímabilið framundan og Evrópuverkefnið Í Litháen um komandi helgi en menn ætla langt í þeirri keppni.

    Eins og fram hefur komið á þessum vettvangi eiga tæknimál og Vængjum þöndum ekki alltaf saman. Því miður var seinni hluti viðtalsin við Bjögga á vitlausri rás en við treystum á að fá kappann aftur til okkar í spjall sem fyrst.

    Og svo er það karlaboltinn. Úrslitakeppni Bestu deildarinnar hefst um helgina og Arnar Grétarsson, þjálfari var á línunni. Við fórum aðeins yfir sumarið hjá Val, framhaldið í haust og áfram og spurðum út í framtíð Birkis Más.

    • 47 min

Top Podcasts In Sport

Farklı Kaydet Podcast
Farklı Kaydet Podcast
Socrates Podcasts
Socrates Podcasts
Potacast
Socrates Dergi, Orkun Çolakoğlu, Kaan Kural
Socrates FC
Socrates Dergi
Diyojen
Castle Media & Underdog | İsmail Türküsev, Turgut Uç
4th Down
4th Down

You Might Also Like

433.is
433.is
Gula Spjaldið
Gula Spjaldið
Dr. Football Podcast
Hjörvar Hafliðason
Steve Dagskrá
Steve Dagskrá
Handkastið
Handkastið
Þungavigtin
Tal