8 episodes

Hlaðvarp um Þín eigin-bækurnar, leikritin og allt sem tengist Þín eigin-heiminum.

www.aevarthor.com

Þitt eigið hlaðvarp Podcaststöðin

    • Arts

Hlaðvarp um Þín eigin-bækurnar, leikritin og allt sem tengist Þín eigin-heiminum.

www.aevarthor.com

    Þín eigin undirdjúp

    Þín eigin undirdjúp

    Í sjöunda þætti hlaðvarpsins (og þeim síðasta á þessu ári) ræðum við sjöundu og nýjustu Þín eigin-bókina; Þín eigin undirdjúp. Við tölum um Bermúdaþríhyrninginn, hákarla, blúp-ið og ungbarnasund - en ekkert endilega í þessari röð. Spurningum hlustenda er svarað og svo endum við auðvitað á að lesa úr Þínum eigin undirdjúpum.

    Viltu senda spurningu inn í þáttinn? Kíktu á aevarthor.com

    • 17 min
    Þinn eigin tölvuleikur

    Þinn eigin tölvuleikur

    Í sjötta þætti af Þínu eigin hlaðvarpi skoðum við Þinn eigin tölvuleik. Ævar segir okkur frá því hvaða tölvuleiki hann spilaði þegar hann var yngri, kennir okkur hvernig maður laumast til að spila Nintendo-leiki þegar það er ekki hægt að vista og maður er búinn með ráðlagða dagskammtinn sinn, talar um LANG-erfiðasta kafla sem hann hefur nokkurn tímann þurft að skrifa, svarar spurningum hlustenda og svo er auðvitað kafli úr Þínum eigin undirdjúpum í lokin.

    Viltu senda spurningu inn í þáttinn? Kíktu á aevarthor.com

    • 24 min
    Þitt eigið tímaferðalag

    Þitt eigið tímaferðalag

    Í þessum fimmta þætti af Þínu eigin hlaðvarpi flettir Ævar í gegnum Þitt eigið tímaferðalag. Hann veltir fyrir sér mismunandi kenningum um tímaferðalög, segir frá því hversu erfitt það var að ákveða hvernig tímavélin í bókinni ætti að líta út, fer yfir hvað var auðveldast og erfiðast að skrifa, svarar spurningum hlustenda og svo endum við auðvitað á upplestri úr Þínum eigin undirdjúpum.

    Viltu senda spurningu inn í þáttinn? Kíktu á aevarthor.com

    • 21 min
    Þitt eigið ævintýri

    Þitt eigið ævintýri

    Í þessum fjórða þætti af Þínu eigin hlaðvarpi flettir Ævar í gegnum Þitt eigið ævintýri. Hann segir frá því hvernig það sem maður les þegar maður er lítill getur haft áhrif á það sem maður skrifar þegar maður verður stærri, útskýrir hvað í ósköpunum 2. persóna er, svarar fjölmörgum spurningum og minnist örlítið á miðaldaklósett. Þá er upplesturinn úr Þínum eigin undirdjúpum einstaklega stórhættulegur í dag.

    Viltu senda spurningu inn í þáttinn? Kíktu á aevarthor.com

    • 20 min
    Þín eigin hrollvekja

    Þín eigin hrollvekja

    Í þessum þriðja þætti af Þínu eigin hlaðvarpi fjallar Ævar um Þína eigin hrollvekju. Hann segir okkur frá því hvernig það var að alast myrkfælinn upp í sveit, hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði, hvaða kafli hræðir hann mest og svo svarar hann sannkölluðu spurningaflóði. Upplesturinn úr Þínum eigin undirdjúpum er líka einstaklega hræðilegur í þetta skiptið – ásamt því að hljóðmyndin sem fylgir honum er vægast sagt óþægileg.

    Viltu senda spurningu inn í þáttinn? Kíktu á www.aevarthor.com

    • 24 min
    Þín eigin goðsaga

    Þín eigin goðsaga

    Í þessum þætti af Þínu eigin hlaðvarpi gluggum við í Þína eigin goðsögu. Ævar segir okkur frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði og hvenær hann þurfti að taka sér skáldaleyfi og bæta aðeins við upprunalega textann. Við skoðum hvaða kafla var erfiðast og auðveldast að skrifa, en líka hvaða kafla Ævari þykir vænst um í öllum Þín eigin-bókunum (Vísbending: Hann er í þessari bók). Svo eru auðvitað spurningar frá hlustendum og upplestur úr Þínum eigin undirdjúpum. Já, og svo heldur Ævar lofræðu um notagildi miða - sem er áhugaverðara en það hljómar. Ég lofa.

    Viltu senda spurningu inn í þáttinn? Kíktu á www.aevarthor.com

    • 19 min

Top Podcasts In Arts

Add to Cart with Kulap Vilaysack & SuChin Pak
Lemonada Media
Fresh Air
NPR
The Moth
The Moth
99% Invisible
Roman Mars
Fashion People
Audacy | Puck
Fantasy Fangirls
Fantasy Fangirls