1 hr 25 min

EKKERT RUSL - Að þessu sinni fórum við Ekkert rusl tvíeykið á Matvælaþing sem haldið var í Hörpu og settum upp pop-up hlaðvarp. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra er fyrst níu viðmælenda sem við tókum tali í þessum fræðand EKKERT RUSL

    • Nature

Þátturinn okkar er nú í fyrsta sinn tekinn upp sem pop-up hlaðvarp og það í Hörpu þann 15. nóvember á þingi um hringrásarhagkerfið í tengslum við matvælaframleiðslu, - dreyfingu og -neyslu. Matvælaráðuneytið stendur fyrir þinginu sem haldið var í annað sinn og er þátturinn stútfullur af fræðslu sem á beint erindi til neytenda. Til að mynda fáum við að kafa ofan í ruslið og sjáum hversu miklu hvert mannsbarn hendir ár hvert og tölurnar eru sláandi. Það kemur okkur á óvart að vökvi er ekki með í tölfræðinni þannig að mjólkurvörur, súpur og annað sem fer í vaskinn, fer einmitt í vaskinn í orðsins fyllstu merkingu. Ari Eldjárn er í viðtali og segir farir sínar ekki sléttar í umleitan sinni til þess að vera góður neytandi og flokkari. Hann var með frábær innlegg á þinginu til þess að brjóta upp formið en fyrirlestrarnir voru heilt yfir ekki bara fræðandi heldur skemmtilegir. Fyrirlesarar voru flestir íslenskir og fáum við marga þeirra til þess að fræða okkur. Einnig fáum við tvær þungavigtakonur í bransanum; Anne, sviðsstjóra hjá dönsku Matvælastofnunni en hún sýnir okkur fram á að Danir eru að nálgast þessi mál aðeins öðruvísi en við. Ladeja frá Slóvaníu, stofnandi Circular Change - henni finnst að Ísland sé í lykilstöðu til þess að leiða með góðu fordæmi í umhverfismálum.