10 episodes

Skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Hallgrímur Thorsteinsson kynnir hlustendur fyrir höfundum vinsælustu bóka Storytel, lesurunum á bak við tjöldin og hvað það er sem fer í gerð hverrar hljóðbókar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Segðu mér sögu Storytel Iceland

    • Arts

Skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Hallgrímur Thorsteinsson kynnir hlustendur fyrir höfundum vinsælustu bóka Storytel, lesurunum á bak við tjöldin og hvað það er sem fer í gerð hverrar hljóðbókar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Segðu mér sögu

    Segðu mér sögu

    Hinn landsþekkti leikari Guðmundur Ólafsson er jafnframt vinsæll rithöfundur og sá eini sem tvisvar hefur hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin. Í fyrra skiptið 1986 fyrir bókina Emil og Skundi og það síðara 1998 fyrir Heljarstökk afturábak. Krakkar á öllum aldri nutu líka listilegrar frásagnargáfu hans í talsettu barnaefni á Stöð 2 í áratugi. Hér á Storytel má m.a. hlýða á einstakan flutning hans á sögunum um Emil og Skunda. Hallgrímur Thorsteinsson er einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslendinga.
    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    • 9 min
    Segðu mér sögu

    Segðu mér sögu

    Berglind Björk Jónasdóttir veit fátt jafn nærandi og að sökkva sér ofan í góða bók. „Það er ekkert sem færir mann nær núvitundinni en að týna sér í upplestri“ segir hún. Við þekkjum Berglindi Björk sem alhliða flytjanda, sem leikkonu, söngkonu og tónlistarmann, kannski einna best sem eina af þríeykinu Borgardætrum, en hér á Storytel sýnir hún á sér nýja hlið og les meðal annars Stúlkurnar á Englandsferjunni eftir danska glæpasagnahöfundinn Lone Theils. Hún segir okkur líka frá bókum föður síns, Jónasar Jónassonar útvarpsmanns, sem hún er stolt af að hafa getað fært til útgáfu hjá Storytel. 
    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    • 8 min
    Segðu mér sögu

    Segðu mér sögu

    Arnar Jónsson steig fyrst á leiksvið hjá Leikfélagi Akureyrar 10 ára gamall. Faðir hans var formaður leikfélagsins og mamma hans, sem var frábær eftirherma, seldi miða í leikhúsið á heimilinu. Sextíu og sex árum síðar, 76 ára gamall, er Arnar enn á fullu og þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og eiginkona hans vinna nú að sjónvarpsútfærslu á einleiknum Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson, sem fyrir sex árum var kveðjustykki hans á sviðinu.
    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    • 23 min
    Segðu mér sögu

    Segðu mér sögu

    Miðaldasagnaheimur Söndru B. Clausen í seríunni Hjartablóð, ljósblár með sögulegu ívafi, er á ýmsa lund nýstárlegur. En sögur hennar af Magdalenu Ingvarsdóttur, fjölskyldu hennar úr Smálöndum Sviþjóðar, ástum hennar og örlögum fyrir 400 árum, eru um leið kunnuglegar, því hjartalag mannanna hefur lítið breyst. Hjartablóðsserían í flutningi Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur njóta mikilla vinsælda hér á Storytel. Hallgrímur Thorsteinsson er einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslendinga. Í nýrri hlaðvarpsseríu, Segðu mér sögu með Halla Thorst, kynnir hann hlustendur Storytel fyrir höfundum okkar vinsælustu bóka. Einstaklega skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    • 10 min
    Segðu mér sögu

    Segðu mér sögu

    Ein gagnlegasta hljóðbókin á Storytel fyrir þá þá sem unna landinu og Íslandssögunni hlýtur að vera bók fræðaþularins Jóns R. Hjálmarssonar: Landnámssögur við þjóðveginn í flutningi Hinriks Ólafssonar. Í bókinni er boðið upp á hringferð um landið þar sem sagðar eru sögur af landnámsmönnunum og heimkynnum þeirra. Hinrik er þjóðþekktur leikari, en líka leiðsögumaður eins og Jón og jafnframt mikill hestamaður. Hinrik segir ekkert jafnast á við það að skoða Ísland af hestbaki. Hallgrímur Thorsteinsson er einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslendinga. Í nýrri hlaðvarpsseríu, Segðu mér sögu með Halla Thorst, kynnir hann hlustendur Storytel fyrir höfundum okkar vinsælustu bóka. Einstaklega skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    • 13 min
    Segðu mér sögu

    Segðu mér sögu

    Storytel fagnar því að hafa fengið Steinunn Ólínu Þorsteinsdóttur í raðir flytjenda. Það er ekki bara að þessi magnaða leikkona hafi veitt okkur næma hlutdeild í sigrum og sorgum fólks með persónutúlkun sinni á leiksviðinu, í kvikmyndum og sjónvarpi í gegnum árin, heldur hefur hún að undanförnu deilt opinberlega eigin baráttu og sorgum við ótímabært fráfall eiginmanns hennar Stefáns Karls Stefánssonar með fágætum styrk og reisn. Steinunn Ólína talar opinskátt um líf sitt í kjölfar fráfallsins, um hinn mikla stuðning sem hún fann frá samfélaginu og um fyrirtækin tvö sem hún stýrir, Kvennablaðinu og Sprettu, gróðurhússins sem Stefán Karl setti í gang til að rækta grænsprettu fyrir veitingageirann.
    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    • 18 min

Top Podcasts In Arts

Add to Cart with Kulap Vilaysack & SuChin Pak
Lemonada Media
Fresh Air
NPR
The Moth
The Moth
99% Invisible
Roman Mars
Snap Judgment Presents: Spooked
Snap Judgment
Minnie Questions with Minnie Driver
iHeartPodcasts