11 episodes

Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.

Reglubókaklúbburinn Reglubókaklúbburinn

    • Leisure
    • 5.0 • 2 Ratings

Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.

    Þáttur 007: Í víðáttu brennandi spegla - Night's Black Agents

    Þáttur 007: Í víðáttu brennandi spegla - Night's Black Agents

    Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. 

    Þú þarft ekki að vera hakkari á heimsklassa til að njóta góðs af þeim stafrænu verkefnum sem Quest Portal, bakhjarl Reglubókaklúbbsins, býður upp á fyrir öll möguleg verkefni. Hvort sem það er að kljást við hverfisfautana eða að sprengja sig upp á topp vampýramídans, þá hefur Quest Portal allt sem útsendarar á vettvangi spunaspila þurfa á að halda.

    Hægt er að nálgast eintak af Night’s Black Agents á vefsíðu Pelgrane Press hérna og mögulega í svartri skjalatösku hjá höfninni undir næsta fulla tungli.

    Blússandi meðmæli Reglunnar
    Node Based Scenario Design
    Spunaspilavinir #24
    Dómsdagur - hlaðvarp
    Opið spunaspilakvöld Nexus

    • 2 hr 39 min
    Þáttur 6: Samansafn fanta og fúlmenna - Star Wars: Edge of the Empire

    Þáttur 6: Samansafn fanta og fúlmenna - Star Wars: Edge of the Empire

    Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni.

    ---

    Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal⁠ sem er með hýperdrifin verkfæri fyrir ævintýrin sem eiga sér stað endur fyrir löngu á fjarlægri vetrarbraut.

    ---

    Vákar, vélmenni og ótótlegir nerf-hirðar geta nálgast eintak af Star Wars: Edge of the Empire ásamt öðrum ágætum köflum úr Stjörnustríðunum í Nexus.

    ---

    Blússandi meðmæli Reglunnar

    Spilastund - Star Wars spunaspil

    OGGdude

    SWRPG Community

    Coriolis Simplified Space Combat

    Starfinder: Narrative Starship Combat

    Hugtakasafn Kvikmyndafræðanna

    Dungeon Crawl Classics, Pathfinder 2e og Warhammer Fantasy

    ---

    Stef þáttarins er ⁠Planned⁠ eftir PeterFK

    Aukastef þáttarins er The Force eftir Giuseppe Vasapolli

    • 1 hr 43 min
    Þáttur 5: Míkródósun örvæntingar - Kjarnabók Vampire: The Masquerade

    Þáttur 5: Míkródósun örvæntingar - Kjarnabók Vampire: The Masquerade

    EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími heilsugæslunnar er að finna í s. 1700, Hjálparsími Rauða Krossins er 1717. Netspjall Heilsuveru býður einnig upp á aðstoð auk þess sem Píeta-samtökin er að finna í s. 552-2218.

    Þau sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi geta leitað til allra þessara aðila ásamt Sorgarmiðstöðinni í s. 551-4141.

    ---

    Kom nú börn nætur, nærumst á skinnu þeirri sem er svo bersýnilega mörkuð af þúsund skurðum uppflettinga.

    ---

    Reglubókaklúbburinn er í þéttu faðmlagi við Quest Portal þar sem er að finna fjöldann allan af ágætum, stafrænum verkfærum til að verja nokkrum eilífðum við að smíða þitt coterie.

    ---

    Daggöngur geta nálgast Kjarnabók ⁠Vampire: The Masquerade⁠ m.a. í innsta kima í sæluríki Glæsibæjar.

    ---

    Blússandi meðmæli Reglunnar

    V5 Relationship Map Template á Kumu

    Spunaspilavinir #21

    Viðburðir í Bókasafni Hafnafjarðar

    ---

    Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK

    Aukastef þáttarins er Habanera úr óperunni Carmen eftir Georges Bizet

    • 1 hr 34 min
    Bitastæður bónusþáttur: Eyjaplayer - Viðtal við Eyþór Viðarsson

    Bitastæður bónusþáttur: Eyjaplayer - Viðtal við Eyþór Viðarsson

    Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die.
    Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það tekur til að búa til raunspilunarhlaðvarp, var Eyþór meira að segja svo vinalegur að mæta með stuttan ríg í stúdíóið fyrir Regluna að kjammsa á.
    Líkt og áður er það ⁠Quest Portal⁠ sem styður Reglu Reglubókaklúbbsins. Þar er m.a. hægt að kynna sér eitthvað af þeim reglum úr Call of Cthulhu regluverkinu sem Eyþór vísar til.
    ---
    Blússandi meðmæli Reglunnar


    The Sprouting

    The Lucky Die

    ---
    Stef þáttarins er ⁠⁠Planned⁠⁠ eftir PeterFK

    • 33 min
    Þáttur 4: Billy-hilla drunga og dauða - Mörk Borg

    Þáttur 4: Billy-hilla drunga og dauða - Mörk Borg

    Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu.

    ---

    Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum Glæsibæjar, hjá alkemistum harmleiksins og er Basilisk þáttarins með hin ýmsu verkfæri til að undirbúa þín eigin Ragnarök.

    ---

    Blússandi meðmæli Reglunnar

    Spunaspilavinir #20

    Bókasafn Hafnafjarðar

    I'm begging you to play another RPG

    RPGBOT.Podcast

    1914 - The Hundred Days Offensive

    Allt þetta fríkeypis efni fyrir Mörk Borg

    ---

    Stef þáttarins er ⁠Planned⁠ eftir PeterFK

    Aukastef þáttarins er Slaughter For The Throne Of Dark Lord eftir Alexey Maximov

    • 1 hr 8 min
    Þáttur 3: Bófalegt muldur um Rýtinga í rökkri

    Þáttur 3: Bófalegt muldur um Rýtinga í rökkri

    Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í gegnum þriðju gráðuna.



    Modus operandi Reglunnar er miðlað til hlustenda þökk sé Quest Portal sem hefur fingraför sín á þessum þætti.

    ---

    Grunnreglur Blades in the Dark er m.a. hægt að finna hjá Quest Portal og þessari vefsíðu hérna. Án þess að vera einhver skvíler, þá er orðið á götunni að Nexus hefur verið með eintök af bókinni í haldbæru, en þú heyrðir það ekki hjá mér.

    ---

    Blússandi meðmæli Reglunnar

    Spunaspilavinir #18 - Þorsteinn og Ólafur ásamt góðvinum Reglunnar, þeim Tinnu og Stulla, stýra spunaspilum fyrir nýja og reynda spilara í Spilavinum þriðjudaginn 9. janúar.

    DM Gives Inspiration á Spotify

    Blóðkorn falla

    Köldudyr - Seta 1: Mávunum kastað á Spotify og Apple Podcasts

    Ár af myrkri hjá Helga

    ---

    Stef þáttarins er ⁠Planned⁠ eftir PeterFK

    • 1 hr 9 min

Customer Reviews

5.0 out of 5
2 Ratings

2 Ratings

Top Podcasts In Leisure

Critical Role
Critical Role
Tales from the Stinky Dragon
Stinky Dragon
Car and Driver's Into Cars
iHeartPodcasts
Duck Call Room
Si Robertson & Justin Martin
ClutterBug - Organize, Clean and Transform your Home
Clutterbug
Simple Farmhouse Life
Lisa Bass