Leikhúsið Hlaðvarp Fréttablaðsins
-
- Artes
Leikhúsið er vikulegur hlaðvarpsþáttur sem fjallar um allar leiksýningar vetrarins 2019/2020. Þáttastjórnendurnir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi.
-
Hans Klaufi
Kjartan fór með systur sinni á Hans Klaufa sem sýnt er í Tjarnarbíó og gerði heiðarlega tilraun til að útskýra hana fyrir Magnúsi.
Þátturinn er framleiddur fyrir Hlaðvarp Fréttablaðsins. -
Er ég mamma mín?
Er ég mamma mín? Er Kjartan pabbi minn? Er Magnús sonur minn? Þessum spurningum ásamt fleirum verður svarað í þætti vikunnar.
Þátturinn er framleiddur fyrir Hlaðvarp Fréttablaðsins. -
Helgi Þór rofnar
Annað en Magnús sá Kjartan EKKI Helga Þór rofnar á Nýja sviði Borgarleikhússins. Í þættinum gerir Magnús heiðarlega tilraun til að útskýra sýninguna á meðan Kjartan er að drepast í maganum.
Þáttur vikunnar er í boði The Mistress og er framleiddur fyrir hlaðavarp Fréttablaðsins. -
Vanja frændi
Kjartan og Magnús sáu Vanja frænda sem sýnt er á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þeir fjalla um pissuvandamál í leikhúsi, hvort að titilpersóna verksins heiti Vanja í raun og veru og hvort þetta 100 ára gamla leikrit eigi erindi við samfélagið í dag.
-
Engillinn
Í þætti vikunnar tala Kjartan og Magnús um Engilinn í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
Leikhúsið er framleitt fyrir hlaðvarp Fréttablaðsins. -
Meistarinn og Margaríta
Í þætti vikunnar ræða Kjartan og Magnús Meistarann og Margarítu sem er sýnd á Stóra Sviði Þjóðleikhússins.