Pant vera blár! Davíð, Kristleifur, Styrmir, Þorvaldur
-
- Lazer
Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því að segja öðru hverju brandara sem falla misvel í kramið hjá öðrum meðstjórnendum.
-
78 - Top5 stór spil í litlum kassa
Lúmsku spilin. Hvaða spil sem koma í litlum umbúðum bjóða uppá mikið spil þrátt fyrir að lítið fari fyrir þeim í hillunni?
-
77. IP sem þurfa spil
Hvaða bækur, bíómyndir eða skáldskaparheimar þurfa spil …eða allavega betri spil?
-
76. 1+1+1 = 3 ára !
Að eiga afmæli er svo gaman,Við spilum allir saman,og tölum svo um þaðog allir hlusta vel!Við settum saman listaog fórum smá að flissaog töluðum svo umhvað okkur fannst best!
-
75. Spilaval
Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira.Spilin og manneskjurnar sem valdar eru eru kölluð hvarfspil og hvarfvinir. Þegar samsetningin er góð myndast hópur sem kallast kjarnahópur. Til að mynda góðan kjarnahóp er einnig gott að hafa bakvið eyrað að stundum er gott að blanda þurrefnum í jöfnuna (Snakk og gos).
-
74. Bíómyndir og borðspil
Aaaaand ACTION! Þú átt að gera...Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund. Í þessum þætti förum við yfir hvaða borðspil eru með góðan grunn af þema sem gæti orðið að bíómynd eða áhugaverðum þáttaseríum.
-
73. 2023 Uppgjör
Spilaárið 2023 gert upp í tölum ogtölfræði með hjálp BGStats. Strákranir fara yfir bestu spilun sem þeir spiluðu í fyrsta skiptið á árinu og ræða hluti sem koma borðspilum ekkert við