30 episodios

Bókaspjall. Rætt um og farið yfir bækur í ýmsum flokkum. Saga, heimspeki, tækni, heilsa o.fl.

Bókabræður eru Kolbeinn Elí Pétursson og Ómar Ómar Ágústsson.

Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp Bókabræður

    • Arte

Bókaspjall. Rætt um og farið yfir bækur í ýmsum flokkum. Saga, heimspeki, tækni, heilsa o.fl.

Bókabræður eru Kolbeinn Elí Pétursson og Ómar Ómar Ágústsson.

    #030 : Extreme Ownership - Jocko Willink & Leif Babin

    #030 : Extreme Ownership - Jocko Willink & Leif Babin

    Extreme Ownership - How U.S. Navy SEALS Lead and Win.
    Til að vera leiðtogi í þínu lífi þarft þú að taka fullt eignarhald á öllum aðstæðum í þínu lífi - engar afsakanir í boði! Í þessari bók er áralangri reynslu tveggja reyndra liðsforingja úr Navy Seals miðlað á hnitmiðaðan og auðskilinn hátt. 
    Bókin er bland af ótrúlegum sögum frá stríðinu í Írak og lexíum sem hægt er að nýta í okkar daglega lífi, hvort sem það er í viðskiptum eða hverju öðru teymi sem þú tilheyrir.
    Mögnuð bók sem allir ættu að kynna sér sem vilja leiða til að sigra!

    • 1h 6 min
    #029 : The Four Agreements - Don Miguel Ruiz

    #029 : The Four Agreements - Don Miguel Ruiz

    Stutt og auðlesin bók með skilaboðum sem eiga vel við alla. Höfundurinn miðlar visku ævagamallar menningar Toltec frumbyggja frá Mexíkó og dregur fram fjögur ný samkomulög sem við ættum að gera við sjálf okkur til að verða betri og heilli manneskjur. 
    Samkvæmt sögu Toltec indíánanna upplifum við lífið eins og að horfa á spegil gegnum reyk, og með aðferðum höfundarins ættum við að geta séð betur gegnum reyk blekkinga og rangra ályktana sem halda aftur af okkur. Með þessum fjórum nýju samkomulögum náum við að þjálfa okkur í að upplifa betri draum um lífið, himnaríki á jörðu.

    • 1h 12 min
    #028 : Factfulness - Hans Rosling

    #028 : Factfulness - Hans Rosling

    Tíu ástæður fyrir því að við sjáum heiminn í röngu ljósi. Heimurinn er betri en þú heldur og höfundur sýnir fram á það með tölfræðilegum staðreyndum.
    Hans Rosling ásamt Ola Rosling og Önnu Rosling Rönnlund telja upp þau atriði sem helst valda því að við sjáum heiminn í oft verra ljósi en hann er. 
    Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.

    • 1h 17 min
    #027 : The Simple Path to Wealth - JL Collins

    #027 : The Simple Path to Wealth - JL Collins

    Your road map to financial independence and a rich, free life. Einfaldur leiðavísir á mannamáli inn í fjármálaheiminn sem allir geta fylgt. Hvar á að fjárfesta, hvers vegna, hvaða áætlun er hagkvæmust og hvaða kostir og gallar eru við hinar ýmsu fjárfestingarleiðir. Þetta og margt fleira byggir höfundurinn á áratuga reynslu í fjármálaheiminum sem honum tekst að miðla á mjög aðgengilegan máta. Hvort sem þú ert með reynslu eða að stíga þín fyrstu skref, þá er þessi bók góður leiðavísir að fjárhagslegu sjálfstæði og hvernig þú getur komið þér upp "F-You Money".
    Tekið upp í Rabbrýminu, upptökuveri Bókasafns Hafnarfjarðar.

    • 1h 4 min
    #026 : Digital Minimalism - Cal Newport

    #026 : Digital Minimalism - Cal Newport

    Choosing a Focused Life in a Noisy World
    Erum við að nota tæknina eða er tæknin að nota okkur? Samfélagsmiðlar, netmiðlar, streymisveitur og stöðugt aðgengi að upplýsingum hefur breytt lífsstíl okkar töluvert. En hverjar eru neikvæðu afleiðingarnar? Hvað ættum við að gera?
    Cal Newport leggur til að takmarka aðgengi okkar að þessum efnisveitum með góðum og gagnlegum ráðum. 

    • 1h 16 min
    #025 : Life Force - Tony Robbins, Peter Diamandis & Robert Harari

    #025 : Life Force - Tony Robbins, Peter Diamandis & Robert Harari

    How New Breakthroughs in Precision Medicine Can Transform the Quality of Your Life & Those You Love.
    Þessi þétta bók fer yfir flest það sem viðkemur því að lifa lengur, sjúkdómalaus og eymslalaus. Tæknin í dag lofar ótrúlegum framförum í læknavísundum sem er farið vel yfir.
    Læknigar á krabbameini, Alzheimer, hjartasjúkdómum, erfðasjúkdómum, öldrunarsjúkdómum, ræktun líffara og ótal öðru er hratt að ryðjast fram. Þekking er máttur og hér er frábær handbók um undur tækninnar sem allir ættu að geta haft gagn af.

    • 1h 37 min

Top podcasts de Arte

Un Libro Una Hora
SER Podcast
Hotel Jorge Juan
Vanity Fair Spain
Preferiría Saberlo
Erik Harley
Grandes Infelices
Blackie Books
Qué estás leyendo. El podcast de libros de EL PAÍS
El País Audio
Flo y la comidia
Onda Cero Podcast