48 min

Fyrri þáttur - Forsagan, aðdragandi og dagurinn sjálfur 50 ár frá Bloody Sunday

    • Arts

Fimmtíu ár eru nú liðin frá einum afdrifaríkasta atburði The Troubles, óaldarinnar á Norður-Írlandi, sem stóð yfir á árunum 1968-1998.
Þann 30. janúar 1972 efndu kaþólikkar til friðsamlegrar réttindagöngu í borginni Derry þar sem þeir kröfðust aukinna borgaralegra réttinda en fátækt, atvinnuleysi og húsnæðisskortur hafði verið hlutskipti langflestra kaþólskra fjölskyldna í landinu áratugum saman.

Þegar nokkuð var liðið á gönguna hóf fyrsta fallhlífaherdeild breska hersins, Para 1, að skjóta á göngufólk og eftir aðeins nokkrar mínútur af algjörri ringulreið lágu þrettán í valnum. Fimmtán særðust og einn af þeim lést síðar af sárum sínum.
Í kjölfarið á þessum hræðilega atburði hörðnuðu átökin á Norður-Írlandi gríðarlega og áttu eftir að kosta fleiri en 3500 mannslíf áður en friðarsamkomulag var loks undirritað árið 1998.

Í fyrri þættinum er forsaga átakanna rifjuð upp um sögu misskiptingar og kúgunar af hálfu Englendinga sem hafði litað líf Íra öldum saman. Við rekjum ástæður þess að landinu var skipt upp í Írland og Norður-Írland og hvað varð til þess að árið 1968 blossuðu átökin upp á milli fylkinga mótmælenda og kaþólikka í landinu. Bloody Sunday breytti öllu, ekki aðeins fyrir þróun átakanna, sem hörðnuðu til mikilla muna, heldur umturnaði hann lífi ótal fólks sem nú stóð uppi sem fjölskyldur fórnarlamba voðaverkanna sem breski herinn framdi þennan dag.

Þátturinn er að stórum hluta byggður á lýsingum þeirra sem upplifðu tíma átakanna og þennan afdrifaríka, blóðuga sunnudag. Sum þeirra eru enn í dag að takast á við afleiðingar hans, hálfri öld síðar.

Viðmælendur í 1. þætti í þeirri röð sem þau birtast:
Bridgeen Sharkey,
Patsy Okane,
Margaret Armstrong,
Sinéad Cooper
Bronagh Cooper
Ursula Clifford
Kevin McDaid,
Bridie Gallagher,

Einnig heyrist í Brian Faulkner fyrrverandi forsætisráðherra Norður-Írlands.

Íslenskar raddir:
Guðrún Hálfdánardóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Hulda Geirsdóttir
Vera Illugadóttir
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
Þórhildur Ólafsdóttir
Guðni Tómasson
Jórunn Sigurðardóttir
Pétur Grétarsson

Tónlist:
Some Mother's Son (Ógánaigh Óig) e. Bill Wheelan.

Top Podcasts In Arts

Bragðheimar
Bragðheimar
Eftirmál
Tal
Víkingar
RÚV
Life with Marianna
Dear Media, Marianna Hewitt
Sjáandinn á Vesturbrú
RÚV
Fed with Chris van Tulleken
BBC Radio 4