46 min

Seinni þáttur - Eftirmál, afleiðingarnar og leitin að réttlæti 50 ár frá Bloody Sunday

    • Arts

Þann 30. janúar 1972 efndu kaþólikkar til friðsamlegrar réttindagöngu í borginni Derry þar sem þeir kröfðust aukinna borgaralegra réttinda í samfélagi sem hafði einkennst af mikilli mismunum og óréttlæti áratugum saman.

Þegar nokkuð var liðið á gönguna hóf herdeild breska hersins að skjóta á göngufólk og eftir aðeins nokkrar mínútur af algjörri ringulreið lágu þrettán í valnum. Fimmtán særðust og einn af þeim lést síðar af sárum sínum.

Bloody Sunday breytti öllu. Í kjölfarið náði ofbeldið á Norður-Írlandi nýjum hæðum og Írski lýðveldisherinn, ÍRA, hafði varla undan að taka á móti nýjum sjálfboðaliðum. Herskáir hópar úr röðum mótmælenda spruttu einnig fram á sjónarsviðið og næstu þrjá áratugi áttu fleiri en 3500 manns eftir að láta lífið í óöldinni, The Troubles.
Í tveimur þáttum verða aðdragandi og eftirmál Bloody Sunday rakin.

Í þessum síðari þætti tökum við upp þráðinn þar sem frá var horfið og heyrum um atburði næstu missera í lífi fjölskyldna fórnarlambanna og á pólitíska sviðinu. Breski herinn hélt því fram að þeir hefðu aðeins skotið í sjálfsvörn á óeirðaseggi og hryðjuverkamenn vopnaða sprengjum og skotvopnum. Fyrri rannsóknin á atburðum dagsins, Widgery-rannsóknarnefndin, staðfesti og studdi þennan framburð.

Barátta fjölskyldna fórnarlambanna hélt því áfram næstu áratugi og árið 1998 var ný rannsókn á Bloody Sunday, Saville rannsóknin, sett á fót. Hún tilkynnti niðurstöður sínar árið 2010 um að allir þeir sem létu lífið hefðu verið óvopnaðir, almennir borgarar og jafnframt að herinn hefði gengið fram með óhóflegu valdi, auk þess að hafa vísvitandi logið til um atburðarásina til að hylma yfir misgjörðir sínar.

Við heyrum lýsingar og frásagnir fólksins sem upplifði daginn sjálfan og eru sum enn þann dag í dag að takast á við afleiðingar hans.

Viðmælendur í 2. þætti í þeirri röð sem þau birtast:
Bridie Gallagher,
Kevin McDaid,
Ursula Clifford
Margaret Armstrong,

Einnig heyrist í:
Derek Wilford, undirofursta og yfirmanni Para 1.
Bernadette Devlin, óháðum þingmanni á norðurírska þinginu
David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands,

Íslenskar raddir:
Jórunn Sigurðardóttir
Guðni Tómasson
Þórhildur Ólafsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Pétur Grétarsson
Björn Þór Sigbjörnsson
Hákon Jóhannesson
Þórey Birgisdóttir

Tónlist:
Some Mother's Son (Ógánaigh Óig) e. Bill Wheelan.

Top Podcasts In Arts

Álhatturinn
Álhatturinn
Eftirmál
Tal
Bragðheimar
Bragðheimar
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast ehf.
AnthroDish
Sarah Duignan
Hardcore Literature
Benjamin McEvoy