Ungt Fólk og Krabbamein Ungt Fólk og Krabbamein
-
- 사회 및 문화
Við kynnumst einstaklingum sem hafa greinst með krabbamein og heyrum um áhrif sjúkdómsins á líf ungrar manneskju. Einlægar frásagnir um erfiða baráttu og kjarkinn sem þarf til þess að takast á við lífshættulegan sjúkdóm.
-
#11 Hulda Hjálmarsdóttir
Hulda Hjálmarsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri Krafts, var aðeins 15 ára þegar hún greindist með hvítblæði.
Hulda greinir hér frá upplifun sinni og hvernig baráttan mótaði lífsýn hennar og samskipti við hennar nánustu. -
#10 Jóhann Björn Sigurbjörnsson
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, landsliðsmaður í frjálsum íþróttum, er að takast á við mikil veikindi en hann greindist með Hodgkins eitlakrabbamein í febrúar sl. og er í miðri lyfjameðferð. Jóhann Björn keppti í 100 og 200 metra spretthlaupi á Smáþjóðaleikunum í Skopje í Makedóníu í fyrra fyrir Íslands hönd. Hann er gestur Maríu Bjarkar í þessum þætti.
-
#9 Hulda Hjálmarsdóttir og Sara Ómarsdóttir - Kraftur
Stuðningur við ungt fólk sem greinist með krabbamein er mörgum gífurlega mikilvægur.
María Björk ræðir hér við Huldu Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Krafts og Söru Ómarsdóttur hjá Norðan-Krafti um hlutverk samtakanna og mikilvægi þess að mynda stuðningsnet. -
#8 Sigurður Gísli Gunnarsson
Sigurður Gísli Gunnlaugsson er 31 árs og býr á Akureyri. Hann fékk beinkrabba 11 ára sem tókst að lækna. Síðan þá hefur hann misst báða foreldra sína úr krabbameini og afa sína og ömmur einnig.
Eftir síðasta áfallið, þegar pabbi hans dó, greindist Sigurður Gísli með geðhvarfasýki. Sigurður segir Maríu Björk frá áföllunum og gleði í lífinu. -
#7 Halla Rut Stefánsdóttir
Ungt fólk og krabbamein: Halla Rut Stefánsdóttir
Hún var að halda uppá fertugsafmælið sitt í Búdapest þegar hún uppgötvaði mein í öðru brjóstinu. Við tók erfiður tími í lyfjameðferðum og skurðaðgerðum. Séra Halla Rut Stefánsdóttir á Hofsósi segir Maríu Björk baráttusögu síðustu tveggja ára. -
#6 Stefán Haukur Björnsson Waage
Stefán Haukur Björnsson Waage er viðmælandi þáttarins. Hann var aðeins 18 ára þegar pabbi hans, Björn Stefánsson frá Hesjuvöllum lést eftir snarpa baráttu við krabbamein í maga fyrir sléttum tveimur árum, þá 53 ára að aldri.
Við kynnumst því hvernig missirinn, sorgin og sorgarferlið hefur snert Stefán Hauk.