Velkomin í Nammiskálina Podcaststöðin
-
- Society & Culture
-
Auður Bergdís og Katrín Mist fá til sín bland í poka af áhugaverðasta fólki landsins, ræða um daginn og veginn ásamt því að lesa djúpt í nammismekk viðmælenda.
-
Birgitta Haukdal
Birgitta Haukdal ræðir við okkur um Írafár árin, hvernig þetta allt saman byrjaði, bókaútgáfur, brotnar tennur og allt þar á milli!
-
Gísli Marteinn Baldursson
Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn segir okkur frá ævintýrum lífsins.
-
Aldís Amah Hamilton
Aldís Amah Hamilton leikkona ræðir við okkur um uppvöxtinn í vesturbænum, vinnunna fyrir framan myndavélina og tölvuleikinn sem er í bígerð. Hún segir okkur einnig frá Suður Kóreska Idol ævintýrinu, aktivismanum og mörgu fleiru!
-
Ólöf Jara Skagfjörð - "Lykillinn er í okkur sjálfum"
Ólöf Jara Skagfjörð er söngkona, leikkona og Norn!
Hún segir okkur frá uppvextinum á íslandi, ferlinum, lífinu í New York og hvernig hún varð Norn! -
Sigyn Blöndal
Sigyn Blöndal verkefnastjóri barna- og ungmennaþjónustu Rúv.
Sigyn fer yfir lífið hingað til. Segir okkur frà draumnum um afrískan ljónabúgarð, dansinum og kaffibollanum sem breytti lífinu. -
Greta Salóme
Greta Salóme er tónlistarkona, fiðluleikari, söngkona, framleiðandi, konsertmeistari, Mosfellingur, Eurovision stjarna og helst af öllu, Nammigrís.
Í þættinum fáum við að kynnast Gretu og uppáhálds namminu hennar. Hún segir okkur frá lífinu og mögnuðum ferli. Hvernig var að týna næstum því lífinu á Keflavíkurflugvelli og hvernig sé að vera kona í tónlistarbransanum.