Ræðum það... Hlaðvarp Góðra samskipta - Ræðum það
-
- Affaires
Umræðuþáttur um:
- Stjórnun og samskipti
- Viðskipti og efnahagsmál
- Stjórnmál og samfélagsmál
-
Taktík, tár og takkaskór
Taktík, tár og takkaskór
Það eru 2 vikur til forsetakosninga og þjóðin er með öndina í hálsinum. Spennan sameinar okkur en sitt sýnist hverjum um frambjóðendur. Kjarnafylgi Katrínar virðist fast í 25% en hún leiðir nú aftur í könnunum. Munu villuráfandi sauðir á vinstri vængnum sem hafa stutt Katrínu rata heim í kjörklefanum? Eða sameinast þeir sem vilja eitthvað annað en forsætisráðherra fyrrverandi á Bessastaði og kjósa þann sem á mesta möguleika á að sigra Katrínu. Verður baráttan um að verða sá frambjóðandi svo hörð að það slettist á alla og Katrín siglir þessu heim?
Allt um þetta í nýjasta Ræðum það...
Gestastjórnendur: Gísli Freyr Valdórsson, Diljá Ragnarsdóttir og Karl Pétur Jónsson
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem -
Skyggnst á bak við tjöldin hjá leiðandi forsetaefnum með ráðgjöfum þeirra
Ræðum það... heldur áfram að fylgjast með forsetakosningunum.
Gestir: Sunna Kristín Hilmarsdóttir (í kosningateymi Höllu Hrundar) og Valgeir Magnússon (almannatengill og ráðgjafi Baldurs)
Rætt er um áskoranir í kosningabaráttunni og hvernig frambjóðendur eru að reyna að ná til kjósenda.
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem -
Er loksins hægt að ræða það sem á að gera?
Ræðum það... fer yfir atvinnumál og nýbreytni í umræðu um efnahagsmál af hálfu Samfylkingarinnar þar sem þau segja hvað þau vilja gera.
Gestur: Kristrún Frostadóttir
Gestastjórnendur: Sigríður Mogensen og Róbert Farestveit
Stjórnandi: Andrés Jónsson -
Mest spennandi forsetakosningar í 30 ár
Ræðum það... fer yfir stöðuna í baráttunni um Bessastaði
Gestastjórnendur: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður, Steinar Þór Ólafsson markaðsmaður og samskiptaráðgjafi og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. -
Ríkisstjórnin lafir en kosningabaráttan er hafin
Ræðum það... er á pólitískum nótum að þessu sinni.
Rætt er um innkomu Kristrúnar Frostadóttur í útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar, einkarekstur í velferðarkerfinu, einkavæðingu ríkisfyrirtækja, eignarhald á bönkum, boðaða sölu Íslandsbanka, tímasetningu kosninga og möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar.
Gestastjórnendur: Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB og Jón Þór Sturluson, háskólakennari og verðandi aðalhagfræðingur sænska fjármálaeftirlitsins.
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem -
Kona með reynslu óskast á Bessastaði
Ræðum það snýr aftur á nýju ári eftir fæðingarorlof stjórnandans.
Rætt er um stöðu ríkisstjórnarinnar, deilur um embættisfærslur Svandísar Svavarsdóttur, nýjustu skoðanakannanir, forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum, möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar, endurkomu Samfylkingarinnar frá fyrsta áratugnum, stöðu Katrínar Jakobsdóttur, tímasetningu alþingiskosninga í ljósi forsetakosninga, forsetaframboð, kröfur til sigurstranglegra frambjóðenda, forsetatíð Guðna, borgarstjóraskipti og hvort Íslendingar séu til í tekjutengdar sektir fyrir umferðarlagabrot.
Gestastjórnendur: Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB og Kolbeinn Marteinsson, almannatengill hjá Athygli
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem