11 episodes

Draugavarpið er ný hlaðvarpssería í tíu þáttum um sannar íslenskar draugasögur.
Draugar, afturgöngur og óútskýranlegir atburðir á okkar frægustu stöðum á Íslandi koma hér við sögu.
Hver þáttur er byggður upp með skemmtilegri frásögn og kafar djúpt í sagnfræðilegu hliðina á sögunum og hvaðan þær koma.
Þulur, höfundur og hljóðhönnun: Fjölnir Gíslason.

Draugavarpi‪ð‬ Fjölnir Gísla

    • True Crime
    • 4.9 • 21 Ratings

Draugavarpið er ný hlaðvarpssería í tíu þáttum um sannar íslenskar draugasögur.
Draugar, afturgöngur og óútskýranlegir atburðir á okkar frægustu stöðum á Íslandi koma hér við sögu.
Hver þáttur er byggður upp með skemmtilegri frásögn og kafar djúpt í sagnfræðilegu hliðina á sögunum og hvaðan þær koma.
Þulur, höfundur og hljóðhönnun: Fjölnir Gíslason.

    S1E10 Kirkjur - Hið menningarlega minni - LOKAÞÁTTUR

    S1E10 Kirkjur - Hið menningarlega minni - LOKAÞÁTTUR

    Hvað eru reimleikasögur í grunninn? Eru þær aðeins dægrastytting, eða svokallaðar óhappasögur sem hafa ákveðið skemmtanagildi? Eða geta þær verið lykillinn að því að viðhalda minningum staðar og rýmis? Jafnvel haldið uppi sönnum atburðum á móti atferlum sem stuðla að þöggun?
    Ég vil benda á að sum umfjöllunarefni þáttarins gætu reynst erfið og vakið upp óhug og ónot þar sem talað verður um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

    • 21 min
    S1E9 Viðfjarðarundrin

    S1E9 Viðfjarðarundrin

    Yfirgefin hús á Íslandi, einnig þekkt sem eyðubýli, virðast oft eiga mikla sögu og oftar en ekki hefur trúin á yfirnáttúruleg fyrirbæri gert úr þeim einhverskonar álagabletti. Þó ekki einungis fyrir reimleika af einfaldari gerðinni, vofur og afturgöngur, heldur reimleikum sem virðast af lýsingunni spretta út frá gladraofsóknum. Fyrirbæri sem eru rík og eiga sér djúpar rætur í íslenskri þjóðarsál.

    • 21 min
    S1E8 Herbergi 48

    S1E8 Herbergi 48

    Þegar kemur að ferðamannaiðnaði eins og Hótelrekstri telst það oft heppilegt ef reimt er á hótelinu eða í ákveðnum hótelherbergjum, vegna aðskón túrista sem eru í þeirri von að upplifa eitthvað óútskýranlegt.
    Mörg hótel í heiminum auglýsa sig á þann máta. Þó er eitt íslenskt hótel sem á sér þannig sögu nema reynt var að halda því leyndu og fæstir vildu gista í því herbergi.

    • 19 min
    S1E7 Lærði skólinn

    S1E7 Lærði skólinn

    Oftar en ekki finnum við fyrir því er við göngum inn í gamlar byggingar að þær eiga sér miklar sögur og draugagangur eða reimleikar í húsum fara í rauninni eftir því hversu mikið er um sagnamenn eða sagnasafnara á hverjum stað. Stóra spurningin er svo hvort sagan sé sönn eða ekki og þarf í raun aðeins eitt einstakt og óvéfengjanlegt tilvik. Oftast er það snúnara að staðfesta að eitthvað sé örugglega ekki til, sérstaklega þegar margir verða vitni af því sama.

    • 22 min
    S1E6 Bergmál leikhúsanna

    S1E6 Bergmál leikhúsanna

    Talað er um að afturgöngur bergmáli fyrri tíma. Oft undirstrika þær harmleik á fyrrum tímum í sögu þjóðarinnar. Eins og áður hefur verið nefnt í fyrri þáttum þá eru ástæður fyrir afturgöngum taldar margar en þó allra helst að þær séu bundin okkar jarðneska heimi vegna þess að þau eiga eftir að binda enda á ókláraða atburði. Oftar en ekki eru það atburðir sem tilheyra sögunni og lifa áfram í minningu þeirra sem lifa og getur því afturgangan tekið á sig ýmsar myndir miðað við þá sem leita hennar.

    • 20 min
    S1E5 Bíldraugar

    S1E5 Bíldraugar

    Sögur um bíldrauga er stór hluti af þjóðsögum Íslendinga, enda bílafloti landsins mikill. Þessar sögur af slíkum ferðalöngum gerast oftast fyrir utan bæjarmörk þar sem þeir fara á puttanum og sníkja far með bílstjórum sem eru akandi. Skrýtnast er þó þegar þeir hverfa fljót aftur á einu augnabliki og þá oftast þegar bíllinn er enn á ferð. Eða þá ef bílstjórinn hefur neitað að stoppa fyrir þeim og þeir birtast svo seinna meir í aftursætinu.
    Leiklesendur eru: Hjalti Stefán Kristjánsson, Ninna Karla Katrínardóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

    • 30 min

Customer Reviews

4.9 out of 5
21 Ratings

21 Ratings

milla 543 ,

Langbesta podkastið !,,

Þetta er besta podkastið sem ég hef hlustað á ,vel lesið og ekkert óþarfa kjaftæði ,bið spennt eftir næstu sögu

Top Podcasts In True Crime

Morðskúrinn
mordskurinn
Morðcastið
Unnur Borgþórsdóttir
ILLVERK PODCAST
ILLVERK PODCAST
The Price of Paradise
Wondery
Skuggaslóð
Skuggaslóð
The Official Jinx Podcast
HBO