Normið normidpodcast
-
- Education
-
Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.
-
Upprif... ekki niðurrif. - Áskriftarþáttur
FEBRÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️
Skoðaðu styrkleikana þína, hættu þessu djöfulsins niðurrifi og ÁFRAM GAKK ÞÚ MIKLI SNILLINGUR.
Án alls gríns samt þá mættum við öll vera duglegri að skoða hvað er gott við okkur. Ekki flóknara en það. Gerum það núna. 🎧 -
Rúnturinn - Áskriftarþáttur
Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️
Sumir segja að eitt það mikilvægasta í lífinu sé fólkið okkar.. og tengingin sem við höfum við fólkið okkar. Rúnturinn er þitt tækifæri til að taka ísrúnt eða göngutúr eða bara sófachill með þinni manneskju og styrkja sambandið ALLSVAKALEGA. Vinkonur, vinir, mæðgur, mæðgin, feðgar, feðgin, frænkur, frændur, makar... name it. Þessi þáttur er til þess að gera samböndin þín betri og sterkari. Have fuuun 👏 -
Framkvæmdu WORKSHOP - Áskriftarþáttur
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️
Splúnkunútt workshop sem hjálpar okkur að framkvæma. Semsagt hætta að dvelja og ofhugsa og fresta osfrv.
Þetta er fyrir öll sem langar að komast skrefinu lengra í lífinu á þessu ári. Jafnvel þessum ársfjórðungi.. er ekki alltaf betra að búta þetta niður? -
Hamingjumettun WORKSHOP - Áskriftarþáttur
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur workshopið í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️
Flest förum við í gegnum tímabil þar sem allt er í blóma og gleði.. þá hugsum við "vá ég ætla alltaaaf að vera svona".. svo gerist lífið. Áður en maður veit af er maður kominn í vesenið eina ferðina enn. Það er náttúrulega bara óraunhæft að vera alltaf í toppstandi, en það er ágætt að grípa í leiðir til þess að ná sér til baka í hamingjuna og gleðina. Hér höfum við akkúrat svoleiðis workshop. -
Sniglumst beinustu leið út úr hjarðhegðuninni!
Þú finnur nýja þætti Í Normið Áskrift!
Næææstum því síðasti þátturinn sem við gefum út kæru uppáhalds hlustendur. Við ákváðum að taka létt spin á "snail girl era" pælinguna, hjarðhegðunarvesenið sem myndast óhjákvæmilega í samfélaginu og svo kom dass af umræðu um "delayed gratification" eða seinkun á verðlaunum. Hvernig getum við í ósköpunum þjálfað með okkur smá sjálfsaga og losnað við þessa quick fix stemningu? -
NORMIÐ ÁSKRIFT - Upplýsingar
Hvað verður inni í áskriftinni? Ja, gott að þú spurðir. Hér færðu svarið. See you on the flip side!💃🏼
Customer Reviews
Þættir sem maður má ekki missa af!
Eftir hvern einasta þátt er maður svo ótrúlega jákvæður og ofurpeppaður að massa lífið og ná markmiðum sínum. Eva of Sylvía kenna manni svo margt eins og til dæmis að ná stjórn á hugsunum mínum, eiga betri samskipti við aðra og fá betra sjalfstraust með einföldum tólum sem þær draga upp úr “verkfærakassanum” sínum og deila í þessum ofurfyndnu og skemmtilegu þáttum💪🏻 Hlustaðu á normið og þá líður þér betur. Svo einfalt er það🎉
Besta podcastið
Elska elska elska þetta podcast🙌🏻 bíð alltaf spennt eftir nýjum þætti og þegar ég hlusta á ykkur er það minn ME TIME❤️
Elska allan skalann af fróðleik frá ykkur og ráðin sem þið komið hef ég oft nýtt mér OG hjálpað mér mikið😍 takk takk takk fyrir ykkar framlag
Besta podcastið!
Þið eruð alveg magnaðar! Bið spennt í hverri viku eftir nýjum þætti. Lífið er einfaldlega betra með ykkur 🤩 Takk 🥰