KA Podcastið Knattspyrnufélag Akureyrar
-
- スポーツ
Podcast by Knattspyrnufélag Akureyrar
-
KA Podcast - Upphitun fyrir bikarúrslit í blaki 2023
Jólin eru framundan í blakinu þegar úrslitahelgi Kjörísbikarsins fer fram í Digranesi 9.-12. mars og eru bæði karla- og kvennalið KA í eldlínunni. Auk þeirra á KA þrjú yngriflokkalið í úrslitum yngriflokka á sunnudeginum.
Þeir Ágúst Stefánsson og Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar KA ræða hér helstu hlutina í blakheiminum á sama tíma og þeir renna leiðina suður. -
KA Podcastið - Arnar Grétars mættur norður
Hlaðvarpsþáttur KA snýr aftur eftir nokkra pásu en að þessi sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Hreinsson til sín Arnar Grétarsson nýráðinn þjálfara KA í knattspyrnu til sín. Arnar er þrautreyndur í knattspyrnuheiminum og er heldur betur ástæða fyrir KA fólk að kynnast nýja stjóranum okkar.
Sem leikmaður lék Arnar alls 71 landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hann lék í atvinnumennsku með Rangers, AEK Aþenu og Lokeren. Þá gegndi hann stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá stórliðunum AEK Aþenu sem og Club Brugge en hann hefur einnig þjálfað Breiðablik og Roeselare í Belgíu.
Þeir félagar fara yfir hina ýmsu hluti í spjalli sínu og klárt að þú vilt ekki missa af þessum þætti! -
KA Topp 5 - Mesti Karakter
Pétur Heiðar Kristjánsson og Siguróli Magni Sigurðsson sjá um nýjan lið hjá KA sem ber nafnið Topp 5. Í fyrsta þætti fá þeir félagar til sín Skúla Eyjólfsson fyrrum leikmann KA og núverandi stjórnarmann.
Í þessum fyrsta þætti renna þeir yfir mestu karakterana í knattspyrnuliði KA frá árinu 2000 til ársins í ár. -
KA Podcastið - Sævar um uppbyggingu KA svæðisins
Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA ræðir meðal annars nýja skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri en Sævar segir til að mynda að hagkvæmast væri að byggja upp aðstöðu KA í einu.
Þá ræðir hann einnig stöðuna á knattspyrnuliði KA en liðið hefur leik á Bose mótinu á laugardaginn þegar strákarnir sækja Breiðablik heim. Einnig fer hann yfir nokkra möguleika er koma að því að lengja tímabilið í fótboltanum sem hefur verið þó nokkuð í umræðunni að undanförnu.
Við hvetjum ykkur eindregið til að hlusta á þetta áhugaverða spjall sem skiptir okkur að sjálfsögðu miklu máli. -
KA Podcastið - Donni gerir upp Þór/KA tímann
Halldór Jón Sigurðsson eða Donni eins og hann er iðulega kallaður mætti í KA Podcastið og gerir upp þriggja ára tíma sinn með Þór/KA. Auk þess spjallar hann um innkomu sína inn í þjálfarateymi karlaliðs KA um mitt sumar og er alveg ljóst að enginn ætti að láta þennan þátt framhjá sér fara.
-
KA Podcastið - Óli Stefán gerir upp sumarið
Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA gerir upp nýliðið sumar og fer yfir hin ýmsu mál tengdu KA liðinu sem endaði í 5. sæti Pepsi Max deildarinnar en það er besti árangur KA frá árinu 2002.