Handkastið Handkastið
-
- Sport
-
Podcast by Handkastið
-
Innkoma Arons breytti öllu og félagsskiptaglugginn farinn á fullt
Fórum yfir leik UMFA og FH í fyrr í kvöld þar sem innkoma Arons breytti öllu. Farið var yfir félagsskipti innanlands og velt því upp hvort UMFA spili með 3 markverði innanborðs á næsta tímabili.
-
FH-ingar vankaðir eftir fyrsta höggið - Valsmenn nálgast fyrirheitnalandið
Afturelding leiðir í baráttunni við FH um Íslandsmeistaratitilinn og Valsmenn eru í góðri stöðu fyrir seinni úrslitaleikinn í Grikklandi næstu helgi.
-
Mosfellsbærinn leyfir sér að dreyma - Hárblásari Gústa Jó kveikti í Valsstelpunum
Afturelding er komið í úrslitaeinvígið eftir að hafa slegið út Val í undanúrslitum og mætir þar Aroni Pálmarssyni og félögum í FH. Tímabilinu er þó ekki lokið hjá Val sem mætir Olympiacos í fyrri úrsitaleik Evrópubikarsins um helgina. Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa sópað úrslitakeppninni.
-
Ísland á HM og allt undir á Hlíðarenda
Ísland er komið á HM áttunda mótið í röð eftir þægilega sigra á Eistum. Fagmannleg frammistaða og loksins vinnur Ísland sannfærandi sigur á útivelli. Stefán Rafn Sigurmannsson fyrrum leikmaður Hauka og íslenska landsliðsins var gestur þáttarins ásamt Guðjóni Guðmundssyni. Hitað var upp fyrir það sem koma skal í úrslitakeppninni og farið yfir stöðuna í úrslitaeinvíginu kvennamegin.
-
Enn eitt stórmótið bíður strákana okkar
25 marka sigur strákanna okkar á Eistlandi gefur góð fyrirheit fyrir seinni leikinn um helgina. Sæti á HM í janúar bíður. Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna er farið af stað og það með miklum látum. Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var gestur þáttarins.
-
Eyjabölvuninni í Krikanum aflétt og Mosfellingar í lykilstöðu
Við settumst niður með Ásgeir Jónssyni og fórum yfir undanurslitaeinvígin í Olís deild karla. FH-ingar eru komnir í úrslit og Mosfellingar eru í lykilstöðu í sínu einvígi gegn Val. Kíktum á úrslitaeinvígið hjá stelpunum og skúbbuðum nýju þjálfarateymi hjá nýliðum Fjölnis í Olísdeildinni.
Customer Reviews
Algjörlega frábærir
Þarna eru á ferðinni bestu handboltaþættir landsins! Takk 😻