Morðskúrinn mordskurinn
-
- True Crime
-
Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.
-
Manndráp: Beth Brodie
Árið er 1992 og hin 15 ára gamla Beth Brodie er beðin um að stökkva yfir til vinar síns Sky - eitthvað sem var óvenjulegt en ekki athugunarvert.
Beth hefði trúlegast aldrei getað séð fyrir hvað átti eftir að gerast. En heima hjá Sky beið hennar drengur, Richard. Sá átti eitthvað vantalað við Beth og var ekki sáttur með svörin sem hún gaf honum. Beth var myrt þennan dag fyrir það eitt að vera ákveðin og standa á sínu.
Þátturinn er í boði Define the Line sport - með kóðanum
morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á
www.definethelinesport.com
Má bjóða þér fleiri þætti?
www.pardus.is/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
-
Manndráp: Rita Politte
Rita hafði nýverið gengið í gegnum mjög svo leiðinlegan skilnað en sátt var hún að hann væri loksins yfirstaðinn. Hún fór út með vinum sínum að skála fyrir því á meðan 14 ára sonur hennar var heima með vini sínum. Hún kom heim um kvöldið og fór að sofa en vaknaði ekki aftur, því um morguninn vöknuðu strákarnir við reyk og í ljós kom að einhver hefði ráðist á Ritu og kveikt í henni. Lögreglan var ekki lengi að finna gerandann í málinu, eða svo þeir töldu, en var réttlætinu náð?
Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com
Komdu í áskrift - það kostar 990kr.- á mánuði og yfir 130 þættir aðgengilegir!
www.pardus.is/mordskurinn -
Dularfullur dauði: Gareth Williams
Gareth var ungur, gríðarlega hæfileikaríkur og klár maður. Hann hafði leikið sér að því að klára hverskyns háskólagráður og ungur að aldri vakið athygli fyrir gáfur sínar. Starf hans var óvenjulegt en hann starfaði innan bresku leyniþjónustunnar þar sem hann leysti úr dulkóðum og passaði vel upp á þjóðaröryggi Bretlands. Eftir ansi langan tíma þar bauðst honum starf í MI6 sem hann þáði en eftir ár þar sá hann að hitt hentaði honum töluvert betur. Hann náði þó aldrei að færa sig í sitt gamla starf, því hann fannst látinn undir afar grunsamlegum aðstæðum nokkru áður en hann átti að skipta.
Þátturinn er í boði Define The Line Sport
Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á
www.definethelinesport.com
Má bjóða þér fleiri þætti? Komdu í áskrift!
www.pardus.is/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
www.instagram.com/mordskurinn -
Raðmorðingi: Tommy Lynn Sells
Vinkonurnar Krystal og Katie voru að gista saman eitt kvöldið þegar maður læddist inn í herbergið þeirra og skar Katie á háls. Á leið sinni út úr herberginu leit hann um öxl og sá Krystal í efri kojunni, sem varð til þess að hún var einnig skorin á háls. Krystal náði samt sem áður að koma sér undan og leita aðstoðar hjá nágranna. Þetta kvöld varð til þess að hinn alræmdi raðmorðingi var handsamaður en skaðinn sem hann hafði ollið síðustu árin var mikill, það mikill að lögreglan er ekki viss um hve mörg fórnarlömb eru.
Með kóðanum morðskúrinn færðu 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com
Komdu í áskrift:
www.pardus.is/mordskurinn
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að skoða myndir frá þeim málum sem við tökum:
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn -
Óupplýst: Mikey Emert
Michael eða Mike/mikey Emert var farsæll fasteignasali, giftur góðri konu og átti stjúpdóttur sem hann dýrkaði og dáði.Hann naut þess að sinna vinnunni sinni enda gerði hann hana vel, var vinsæll og eftirsóttur fasteignasali sem var nóg að gera hjá. Það var því ekkert óeðlilegt þegar hann fékk símtal frá kúnna sem óskaði eftir því að sjá eign með stuttum fyrirvara, það sem var hins vegar óeðlilegt var að hann var látinn innan sólarhrings síðar.
Þátturinn er í boði Define The Line Sport
Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com
Viltu koma í áskrift?
www.pardus.is/mordskurinn -
Manndráp: Madeline Soto
Í febrúar árið 2024 hvarf hin 13 ára Madeline Soto. Stjúpfaðir hennar Stephen sagði að hann hafi skutlað henni nokkra metra frá skólanum þennan morguninn og þegar móðir hennar Jennifer ætlaði að sækja hana þá komst hún að því að Maddie skilaði sér aldrei í skólann. Leit hófst í kjölfarið og rannsókn fór á fullt, en það tók lögreglu ekki marga daga að komast að því hvað raunverulega kom fyrir Maddie.
Þátturinn er í boði Define The Line Sport - en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum!
Yfir 130 áskriftarþættir í boði inni á www.pardus.is/mordskurinn fyrir aðeins 990kr.-!
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:
www.instagram.com/mordskurinn
www.facebook.com/mordskurinn
Þar geturu skoðað myndir af hverju máli fyrir sig, séð umfjallanir um mál sem eru í gangi, komið með ábendingu af máli og margt annað skemmtilegt!
Customer Reviews
Hulda
Snilldar þættir 👌
❤️
Þið eruð æði og takk fyrir “ég ætla bara að byrja” 😀 Elska hvað þið komið ykkur strax að efninu og eruð skemmtilegar!
🙌🏻🙌🏻
Þetta podcast er geggjað🙏🏻Elska hvað þið komið ykkur beint að efninu, það er kærkomið að byrja bara málið strax!