Pyngjan Pyngjan
-
- Business
-
Í Pyngjunni eru ársreikningar fyrirtækja skoðaðir og ræddir. Athugið að (eiginlega) öll gögn sem stuðst er við eru opinberar upplýsingar. Þáttastjórnendur eru Arnar Þór Ólafsson og Ingvi Þór Georgsson
-
Föstudagskaffið: Er tími snjallsímans uppurinn?
Sendu okkur skilaboð!
Í þætti dagsins erum við með nóg af fréttum og svo kemur Iddinn með tvær heimsklassa umfjallanir. Þetta er einn af þessum þáttum sem enginn má missa af. Góð helgi, kæru kúrekar og launþegar. -
Föstudagskaffið: vinnustaðar topplistinn snýr aftur
Sendu okkur skilaboð!
Þáttur dagsins er stappaður af gúmmelaði fyrir okkar ástkæru netbankakúreka. Fréttir vikunnar, Inn- og útflutningur á Ítalíu, milljarðamæringur vikunnar og að ógleymdum vinnustaðar topplistanum í boði Idda. Góða helgi kæru launþegar! -
Föstudagskaffið: María Lena stofnandi M-Fitness & Hannes karlinn hennar
Sendu okkur skilaboð!
Þau komu til okkar María og Hannes sem saman reka fatamerkið M-Fitness. Saga þeirra er stórmerkileg en merkið hefur hlotið mikillar velgengni sem kom svo sannarlega ekki af sjálfri sér, en í þættinum rekja þau söguna aftur og gefa okkur smjörþef af því hvernig skal bera sig að í frumkvöðlastarfsemi. Þennan þátt skaltu ekki láta framhjá þér fara, kæri hlustandi! -
Föstudagskaffið: Iddi dreypir á einum Welding
Sendu okkur skilaboð!
Stútfullt föstudagskaffi að vanda - tvær umfjallanir frá Iddanum og fréttir vikunnar hjá Addanum. Góðar stundir -
Föstudagskaffið: Krónískur afsláttur hlutabréfa í Kóreu
Sendu okkur skilaboð!
Í þætti dagsins má heyra yfirborðskennda en þó merkilega umfjöllun um Suður-Kóreskan markað og krónískan hlutabréfaafslátt þar í landi. Við kynnum einnig til leiks nýjan dagskrárlið og svo eru fréttir vikunnar á sínum stað. Gangið hratt inn um gleðinar dyr um helgina kæru kúrekar. -
Föstudagskaffið: Iddi fjárfestir í Tequila
Sendu okkur skilaboð!
Já kæru hlustendur, við Pyngjumenn látum ekki deigan síga þennan föstudaginn frekar en þann fyrri , en þáttur dagsins er stútfullur af alls konar lostæti. Fréttir vikunnar, tuð og umfjöllun á heimsmælikvarða um fjárfestingar í Tequila. Gangið af hörku inn í helgina!
Customer Reviews
Föstudagspyngjan !!
Er ekki í lagi? Hver er markhópurinn?? 15 ára krakkar eða fólk sem nennir ekki að hlusta s fck í öðu hverju orði?? Barnalegt og á ekki við í annars áhugaverðu spjalli um Viðskipti og félög. Grow up og þá verðið þið flottir 💪🏼🔥