Flakk

RÚV
Flakk Podcast

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

  1. EPISODE 5

    Flakkað um Bræðraborgarstíg - síðari þáttur

    Jón Smali og Gvendur dúllari. Viðurnefni hafa alltaf verið til á Íslandi, kannski voru þau fleiri í gamla daga, en margir þeirra sem bjuggu við Bræðraborgarstíg áttu sér viðurnefni. Leigði út pláss í fataskápnum Jón smali var vatnsberi í Reykjavík, talinn afar samansaumaður en séður í peningamálum enda tókst honum að byggja sér hús, sem hann leigði svo meira og minna út, og bjó í einni kytru sjálfur, segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur um einn íbúa Bræðraborgarstígs. Hann byggði húsið Miðdal sem er nr. 19 seint á nítjándu öld, nú búa í húsinu Markús Þór Andrésson og Dorothee Kirch, en þau eru bæði sýningarstjórar myndlistarsýninga. Þau eignuðust húsið fyrir 5 árum, en það er gætt þeim undrum að virðast afar lítið að utan, en er þó 5 herbergja og rúmt þegar inn er komið og hefur verið gert upp. Einnig er mikil frjósemi í húsinu en þau hjónin eignuðust nýlega dóttur númer tvö. Eru bæði hætt í stóru leikhúsunum Hjónin Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson leikarar búa við Bræðrarborgarstíg með dætrum sínum tveimur. Þau eignuðust íbúðina árið 2007. Húsið byggði skósmiður og trúboði nokkur, sem hélt samkomur á heimili sínu. Álfrún og Friðrik kusu bæði að hætta á samningum í leikhúsunum til að eiga meiri tíma með fjölskyldunni, en leiklistinn er þó ekkert farin úr lífi þeirra, hún bara blundar um tíma.

    51 min
  2. EPISODE 8

    Flakkað súkkulaðiegg og páska

    Í flakkinu í dag er fjallað um sögu páskana, páskaeggja og súkkulaði útum allt. Súkkulaðiegg og lambasteik tilheyra páskunum. En eru páskarnir eingöngu trúarhátíð, hver er saga þeirra? Og hvenær byrjuðum við að borða súkkulaðiegg? Árni Björnsson þjóðháttafræðingur segir frá hvernig eggin fóru að tilheyra páskum, en hænurnar byrjuðu að verpa aftur eftir veturinn og leiguliðar þurftu að gjalda klaustrum og öðrum eigendum jarða skatt, og á vorin voru það eggin, þeir sem fengu of mikið gáfu börnunum gjarnan umframegg, því annars hefðu þau fúlnað. Páskarnir voru til löngu fyrir kristni, en sláturtíð hófst að vori eftir föstu, og þá voru páskarnir eins konar vorhátíð. Í Færeyjum skreyttu börnin hænuegg á laugardeginum fyrir páska, þau voru soðin í tei eða matarlit og síðan máluð. Páskadagsmorgun var svo farið í brekkuna og eggjunum kastað upp, og síðan gripin þegar þau rúlluðu niður, og svo var alltaf lambasteik, segir Marenza Poulsen matreiðslumeistari um siði og venjur í Færeyjum. Sér er siður í hverju landi, því fyllt súkkulaðiegg og málshættir eru svolítið íslenskt fyrirbæri. Súkkulaðibaunin verður að vera afbragðsgóð Segir Hafliði Ragnarsson súkkulaðimeistari hjá Mosfellsbakaríi, sem hannar og býr til dýrindisegg, ólík þeim sem við eigum að venjast en eins í laginu. Hann hefur búið til og selt þessi einstöku egg um nokkurra ára skeið í bakaríinu sínu. Þeir Kjartan Gíslason og Karl Viggó Vigfússon súkkulaðimeistarar hjá Omnom eru sama sinnis um baunina, og það er mest spennandi að finna nýjar góðar baunir og prófa sig áfram með ýmis brögð svo sem sjávarsalt, chili og fleira spennandi. Hafliði ætlar m.a. að prófa tómata í súkkulaðið, og svo má gjarnan nota súkkulaði í sósur segir Marenza. Súkkulaði og aftur Súkkulaði í Flakkinu um páskana.

    50 min

About

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

To listen to explicit episodes, sign in.

Stay up to date with this show

Sign in or sign up to follow shows, save episodes and get the latest updates.

Select a country or region

Africa, Middle East, and India

Asia Pacific

Europe

Latin America and the Caribbean

The United States and Canada