Það er margt skemmtilegt og skrítið í málfræðilegri tölu í íslensku og tala og merking eiga ekki alltaf saman. Skæri, buxur og dyr eru fleirtöluorð þrátt fyrir að eiga við um eitt ákveðið fyrirbæri og orð eins og fólk og fé eru bara notuð í eintölu, þrátt fyrir að vísa til fjölda. Sum orð, eins og skap og sköp líta út fyrir að vera eintala og fleirtala sama orðs en eru í raun tvö orð með ólíka merkingu, hvort um sig aðeins til í einni tölu.
Informations
- Émission
- FréquenceSérie
- Publiée29 septembre 2019 à 17:25 UTC
- Durée30 min
- Épisode5
- ClassificationTous publics