Rauða borðið Gunnar Smári Egilsson
-
- News
-
Róttæk samfélagsumræða.
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
-
Kosningar, snjóflóð, friður, fátækt og kynjaþing
Mánudagurinn 27. maí
Kosningar, snjóflóð, friður, fátækt og kynjaþing
Baldur Héðinsson stærðfræðingur segir okkur frá kosningaspá sinni og Þorkell Helgason stærðfræðingur og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur segja okkur frá írsku aðferðinni í kosningum, sem meðal annars kemur í veg fyrir að óvinsæll frambjóðandi nái kjöri með takmarkað fylgi. Fjallið það öskrar er heimildarmynd um snjóflóðið á Súðavík. Hafsteinn Númason eftirlaunamaður, Daníel Bjarnason leikstjóri og Aron Guðmundsson meðframleiðandi og höfundur samnefndra útvarpsþátta koma að Rauða borðinu og ræða myndina og hina hryllilegu atburði. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi ræðir við okkur um frið og stríðsógn og Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona um fátækt. Í lokin koma þær Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, og Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélagsins og segja okkar frá kynjaþingi og spá í stöðuna á kvenfrelsisbaráttunni. -
Synir Egils: Pólitíkin og kosningar hér heima og erlendis
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur, Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Drífa Snædal talskona Stígamóta og ræða forsetakosningar og fleiri fréttir. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni og fá síðan heita stuðningsmenn fjögurra frambjóðenda: Helga Lára Haarde sálfræðingur er stuðningskona Höllu Hrundar, Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff er stuðningskona Höllu Tómasar, Evert Víglundsson einkaþjálfari er stuðningsmaður Baldurs og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM er stuðningskona Katrínar.
Vettvangur dagsins:
Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur
Drífa Snædal talskona Stígamóta
Bræður spjalla
Forsetakosningar
Helga Lára Haarde sálfræðingur og stuðningskona Höllu Hrundar
Margrét Kristmannsdóttir forstjóri Pfaff og stuðningskona Höllu Tómasar
Evert Víglundsson einkaþjálfari og stuðningsmaður Baldurs
Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM og stuðningskona Katrínar -
Helgi-spjall: Inga Sæland
Laugardagurinn 25. maí
Helgi-spjall: Inga Sæland
Inga Sæland formaður Flokks fólksins kemur að Rauða borðinu og segir frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótunarárum á Ólafsfirði, harðri lífsbaráttu og áföllum, en ræðir líka smá pólitík í lokin. -
Vikuskammtur: Vika 21
Föstudagurinn 24. maí
Vikuskammtur: Vika 21
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, stríðum og átökum. -
Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía
Fimmtudagurinn 23. maí
Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía
Við ræðum forsetakjör við Rauða borðið. Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Helga Arnardóttir fjölmiðlakona ræða ýmsar hliðar baráttunnar. Síðan kemur Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi og ræðir um stöðu smáríkis í viðsjárverðum heimi. Steinunn Þóra Árnadóttir formaður velferðarnefndar ræðir frumvarp um húsaleigulög, sem leigjendur segja lítil hænuskref í átt að réttlæti. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur vakið athygli og verið til umræðu í erlendum fréttamiðlum síðustu vikur. Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri kemur og segir okkur hvers vegna. -
Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindir
Miðvikudagurinn 22. maí:
Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindir
Við ræðum við tvö forsetaframbjóðendur um mál sem þeir hafa lagt áherslu á. Halla Tómasdóttir segir okkur hvers vegna samfélagið er á villigötum og frá þeirri vakningu sem hún telur nauðsynlega. Halla Hrund Logadóttir segir okkur frá sinni sýn á auðlindir þjóðarinnar og hvers vegna við þurfum að móta stefnu um nýtingu þeirra. Í byrjun þáttar kemur Guðmunda Greta Guðmundsdóttir öryrki að Rauða borðinu, en hún hefur lýst kjörum öryrkja í pistlaskrifum. Útgerðarmenn og sjómenn segja að fiskurinn sé að horast upp. Við fáum Jón Kristjánsson til að segja okkur hvað það merkir. Og Benedikt Sigurðarson kemur við og ræðir auðlindanýtingu, til sjávar og sveita en ekki síst í ferðaþjónustu.