Spursmál Ritstjórn Morgunblaðsins
-
- News
-
Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is
Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.
Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum
á mbl.is.
-
#27. - Bjarni á pólitísku jarðsprengjusvæði?
Bjarni Benediktsson nýskipaður forsætisræðherra fer yfir málin með Stefáni Einari. Til umræðu er ríkisstjórnarsamstarfið, ríkisfjármálin, nýkjörinn forseti, hvalveiðar og hælisleitendamál svo eitthvað sé nefnt.
Stór mál hafa beðið afgreiðslu í þinginu undanfarið en ný yfirstaðnar forsetakosningar höfðu áhrif á störf þingmanna og ríkisstjórnar sem nú er sögð hanga á bláþræði eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur.
Auk hans koma þau Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi ráðherra og Sandra Hlíf Ocares varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fara yfir það sem komst í hámæli í vikunni. -
#26. - Baráttan um Bessastaði og eldsumbrot
Þau Edda Hermannsdóttir markaðs- og samskiptastjóri hjá Íslandsbanka, Sindri Sindrason fjölmiðlamaður og Andrés Jónsson almannatengill mæta í settið og rýna í stöðuna sem nú blasir við á lokametrum kosningabaráttunnar. Miðað við niðurstöður síðustu skoðanakannana gæti verið að fram undan séu mest spennandi kosningar síðustu áratugi.
Eldfjallafræðingurinn Ármann Höskuldsson ræðir við Stefán Einar Stefánsson um um eldsumbrotin en eins og alþjóð veit þá hóft nýtt eldgos í Sundhnúkagígaröðinni á miðvikudag. -
#25. - Arnar Þór situr fyrir svörum
Undanfarið hefur framboð Arnars vakið mikið umtal. Einna helst eftir að Arnar Þór kærði Halldór Baldursson skopteiknara til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands á dögunum.
Þá hafa hugsjónir Arnars og andóf hans á ríkjandi stjórnarfari og forræðishyggju ríkisvaldsins einnig verið í umræðunni síðastliðna daga. Hefur hann hlotið þó nokkra gagnrýni vegna afstöðu sinnar til þungunarrofs og bólusetninga en Arnar Þór gefur sig út fyrir að vera mikill talsmaður fyrir frelsi einstaklingsins. -
#24. - Hverju svarar Halla T.
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar.
Líkt og í fyrri þáttum verður Höllu gert að svara krefjandi spurningum. Beint verður að henni spurningum sem snúa að skyldum forsetans og því sem kemur í hlutskipti hans út frá bakgrunni hennar sem forstjóri alþjóðlegu sjálfseignarstofnunarinnar B Team.
Fyrirtækið B Team er vettvangur stjórnmála-, viðskipta- og áhrifafólks víðs vegar um heim með höfuðstöðvar í New York. Stofnandi B Team, Richard Branson, hefur verið umdeildur í gegnum tíðina og hlotið gagnrýni fyrir tvímæli í stefnu sinni um loftslagsmál. Þá hefur hann einnig verið sakaður um skattsvik.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og sr. Grétar Halldór Gunnarsson prestur í Kópavogskirkju mæta í settið til að fara yfir þær fréttir sem komust í hámæli í vikunni sem er að líða. -
#23. - Jón Gnarr krafinn svara
Jón Gnarr svarar krefjandi spurningum er varða fortíð hans og bakgrunn sem einn vinsælasti grínisti landsins í samhengi við framboð hans til embættis forseta Íslands.
Einnig var knúið á um svör hvers konar hugsjónir Jón hefur á forsetaembættinu og með hvaða hætti hann kemur til með að beita sér í því verði hann kjörinn.
Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins mættu í settið til að fara yfir stærstu fréttamálin sem upp komu í vikunni. -
#22. - Halla Hrund situr fyrir svörum
Lagðar eru krefjandi spurningar fyrir Höllu Hrund í þættinum er tengjast valdsviði forsetans og knúið á um svör hvers konar forseti hún hyggst verða nái hún kjöri. Þar verða málskotsrétturinn, stjórnarskráin, tungumálið og margt annað sem kemur í hlutskipti forsetans til umræðu.
Vafi hefur leikið á tengslum Orkustofnunar við verktaka sem starfa nú í kosningateymi Höllu Hrundar.
Þykir mörgum spurningum ósvarað hvað tengslin varðar og hugmyndir uppi um að þau séu af óvenjulegum toga sé tekið mið af nánum tengslum hennar við Orkustofnun þar sem hún hefur verið hæstráðandi fram til þessa.
Yfirferð á fréttum vikunnar verður í góðum höndum í þættinum. Eva Dögg Davíðsdóttir nýr þingmaður Vinstri Grænna mætir í settið ásamt Guðmundi Árna Stefánssyni varaformanni Samfylkingarinnar til að ræða það sem bar hæst á góma í vikunni sem senn er á enda.