![](/assets/artwork/1x1-42817eea7ade52607a760cbee00d1495.gif)
74 episodes
![](/assets/artwork/1x1-42817eea7ade52607a760cbee00d1495.gif)
Snorri Másson ritstjóri Snorri Másson
-
- News
-
-
4.1 • 14 Ratings
-
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
-
Fréttir vikunnar | Vinstrisinnuð öfgahægrisveifla og strákar á móti „stelpum og stálpum“
Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind hjá Apple og umfjöllun um kjarna sósíalismans.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Reykjavík Foto. -
Fréttir vikunnar | Rök gegn virkjunum, íslenskir hagsmunir og vopnasendingar (með Sigríði Á. Andersen)
Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar, efasemdir um orkuskipti, bókun 35, útlendingamál og stöðu íslenska hægrisins.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate. -
Fréttir vikunnar | Vanhæft ríki, gaslýsingar Landsbankans og nauðsynlegar upplýsingar um kosningar
Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og álitsgjafi kemur að borðinu með verðugar pælingar.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og loks Rafstorm -
Fréttir vikunnar | Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP um Ísland, tölvuleiki og framtíðina
Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem fyrirbæri, framtíð gjaldmiðla í stafræna heiminum, verðmæt störf á Íslandi, foreldra í snjallsímum og framtíðarplön hins öfluga íslenska tölvuleikjafyrirtækis.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og loks Rafstorm. -
Fréttir vikunnar | Halla Hrund ruglast, fjallkonan og gervigreind lýgur vísvitandi að ritstjóranum
Í fréttum vikunnar förum við yfir byltingar í gervigreind og átök innan eins mikilvægasta fyrirtækis heims á því sviði, við tökum gervigreindina tali (skrýtin uppákoma) við ræðum þjóðernishyggju þá og nú, nefnum þar misheppnaða bókargjöf forsætisráðherra og svo förum við yfir rugling hjá Höllu Hrund og skandala í hennar sögu.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og einnig Rafstorm. -
Fréttir vikunnar | Leiðbeiningar fyrir nýja vinstrið, málfrelsi mótmælenda og heilagir embættismenn
Í fréttum vikunnar er fjallað um draumórakenndar ráðleggingar fyrrverandi þingmanns til hins svonefnda nýja vinstris (loftslagsmál, femínismi og alþjóðahyggja koma þar við sögu), fjallað er um mótmæli gegn Ísrael vestanhafs, áskoranir kjarnafjölskyldunnar, forsetaframbjóðanda Morgunblaðsins og minnkandi lífslíkur á Íslandi.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.