8 episodes

Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessari fjögurra þátta röð, úr smiðju feðginanna Snærósar Sindradóttur og Sindra Freyssonar, er ævintýralegur og hreint ótrúlegur ferill Jósafats rakinn frá upphafsárum hans í svindli á vellinum í Keflavík og þar til fjársvikin fóru að hlaupa á milljörðum á alþjóðasviðinu í Bretlandi og Írlandi - en þá hafði Jósafat fyrir löngu sagt skilið við nafnið sem honum var gefið í bernsku og farinn að kalla sig Grimson, Joe Grimson.

Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.

Joe Grimson: Saga af svikum RÚV

    • Arts
    • 4.5 • 6 Ratings

    Stikla

    Stikla

    Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessari fjögurra þátta röð, úr smiðju feðginanna Snærósar Sindradóttur og Sindra Freyssonar, er ævintýralegur og hreint ótrúlegur ferill Jósafats rakinn frá upphafsárum hans í svindli á vellinum í Keflavík og þar til fjársvikin fóru að skipta milljörðum á alþjóðasviðinu í Bretlandi og Írlandi - en þá hafði Jósafat fyrir löngu sagt skilið við nafnið sem honum var gefið í bernsku og farinn að kalla sig Grimson, Joe Grimson.

    • 1 min
    Fyrsti þáttur: Ævintýri á Vellinum

    Fyrsti þáttur: Ævintýri á Vellinum

    Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessum fyrsta þætti er farið yfir upphaf ferils Jósafats, gríðarlegan uppgang í Keflavík sem Jósafat tók þátt í af krafti, og loks fyrsta sakamálið gegn honum, en Jósafat var dæmdur fyrir umfangsmikið ávísanasvindl.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
    Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson
    Viðmælendur í þessum þætti: Valtýr Sigurðsson, Ragnar Áki Jónsson, Friðþór Eydal, Árni Samúelsson,
    Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Ingvar Þór Björnsson, Sindri Freysson, Sigrún Hermannsdóttir, Viktoría Hermannsdóttirog Einar Kárason

    • 40 min
    Annar þáttur: Rannsóknarblaðamaðurinn

    Annar þáttur: Rannsóknarblaðamaðurinn

    Á áttunda áratugnum var ágeng rannsóknarblaðamennska að fá byr undir báða vængi erlendis. Komin var fram ný kynslóð fréttamanna sem hikaði ekki við að svipta hulunni af spillingu og misgjörðum valdhafa og auðjöfra. Einn slíkur blaðamaður hér á landi var Vilmundur Gylfason, sem fjallaði um málefni Jósafats Arngrímssonar í óháðum fréttaþætti á RÚV og "dansaði línudans á meiðyrðalöggjöfinni" að eigin sögn.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
    Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson
    Viðmælendur í þessum þætti: Jón Ólafsson, Valgerður Bjarnadóttir og Valtýr Sigurðsson.
    Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Freyr Rögnvaldsson, Björn Þór Sigurbjörnsson, Sindri Freysson, Karl Magnús Þórðarson, Guðni Tómasson, Andri Freyr Viðarsson og Rúnar Róbertsson

    • 40 min
    Þriðji þáttur: Nígeríumálið

    Þriðji þáttur: Nígeríumálið

    Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar, þyrluflug, herragarður, og sýndarfyrirtæki í kvikmyndabransanum.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
    Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson
    Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Silja Beite Løken, Finnbogi Hvammdal Lárusson, Atli Már Steinarsson og Sindri Freysson

    • 40 min
    Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands

    Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands

    Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það var Íslendingur sem fyrstur manna var ákærður fyrir téð lagaákvæði, Sigurður Arngrímsson. Málið teygir sig yfir hálfan hnöttinn og er ein stærsta ráðgátan á ævintýralegum ferli Jósafats Arngrímssonar.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
    Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson
    Viðmælendur í þessum þætti: Svanhildur Konráðsdóttir, Alfreð Sturla Böðvarsson og Einar Kárason.
    Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Úlfur Grönvöld og Sindri Freysson.

    • 40 min
    Myrtu þeir Eggert? - Stikla

    Myrtu þeir Eggert? - Stikla

    Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum?

    • 1 min

Customer Reviews

4.5 out of 5
6 Ratings

6 Ratings

Top Podcasts In Arts

Eftirmál
Tal
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast ehf.
Bragðheimar
Bragðheimar
Table Manners with Jessie and Lennie Ware
Jessie Ware
Ormstungur
Ormstungur
Víkingar
RÚV

You Might Also Like

Í ljósi sögunnar
RÚV
Heimskviður
RÚV
Heimsglugginn
RÚV
Þjóðmál
Þjóðmál
Chess After Dark
Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson
Þungavigtin
Tal