Á vettvangi Heimildin
-
- Society & Culture
-
Í þáttunum fylgir Jóhannes Kr. Kristjánsson kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir í um tveggja mánaða skeið. Þáttaröðin fer í loftið á Heimildinni þann 22. apríl og verða þættirnir fjórir og birtir vikulega.
-
#4 Skaðleg áhrif kláms
„Við sjáum í rauninni allan þennan ljótleika sem tilheyrir þessum brotaflokki gerast í nánum samböndum,“ segir Jenný Krístín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
-
#3 Kynferðislegt efni notað til fjárkúgunar
„Nýlega vorum við með mál þar sem ungur maður kynnist einni á netinu og gerir þetta og hann endaði með því á einni helgi að borga viðkomandi aðila alla sumarhýruna eftir sumarvinnuna og síðan bætti hann við smáláni þannig að hann borgaði alls eina og hálfa milljón krónur en þrátt fyrir það var birt,“ segir Kristján lngi lögreglufulltrúi. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.
-
#2 Hljóðin eru verst
„Ég fæ bara gæsahúð sjálf þegar ég hugsa um þetta enn þann dag í dag og það eru mörg ár síðan ég sá þetta myndskeið,“ segir Bylgja lögreglufulltrúi sem hefur það hlutverk að myndgreina barnaníðsefni. Það felur meðal annars í sér að hún þarf að horfa á myndskeið þar sem verið er að beita börn ofbeldi. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar.
-
#1 Leigubílstjórinn handtekinn
„Halló. Þú þarft að koma með okkur,“ segir lögreglan við mann sem verður færður á lögreglustöð vegna gruns um kynferðisbrot. Áður hafði leigubílsstjóri verið handtekinn vegna sama máls. Báðir mennirnir eru komnir í farbann. Á vettvangi er ný hlaðvarpssería þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hér er fyrsti þáttur.
-
Sýnishorn - Á vettvangi
Þáttaröðin Á vettvangi fer í loftið á Heimildinni þann 22. apríl og verða þættirnir fjórir og birtir vikulega.