Sundur og Saman Þórhildur Magnúsdóttir
-
- Health & Fitness
-
Hlaðvarpið þar sem þú lærir að skapa besta samband sem þú getur ímyndað þér.
Ertu með spurningu sem þú vilt fá svar við í hlaðvarpinu? Sendu mér línu!
https://www.instagram.com/sundurogsaman/
https://sundurogsaman.is
-
#4 Að þora að vera sexy, án þess að þurfa þess!
Pælirðu stundum mikið í því hvort þú einhver klæðaburður sé of sexy? Eða hvort að einlægi áhugi þinn á manneskju sé óviðeigandi? Eða hvort einhver haldi að þú sért að reyna við sig þegar þú ert það ekki? Í þessum þætti fjalla ég um hvaða þættir stuðla að því að þú getir verið sexy - án þess að þurfa þess. Ég efast ekki um að eitthvað af þessu muni koma þér á óvart. Láttu mig vita hvað þú uppgötvaðir í komment eða í skilaboðum á instagram.
@sundurogsaman á Instagram
Frítt tjáningaform - Tjáðu þig um það sem skiptir máli, en slepptu restinni!
Áttaviti PDF handbók -
#3 Af hverju samband er ekki nóg? Ekki ætlast til að ein manneskja gefi það sem heilt þorp á að veita.
Ef þú hefur áhyggjur af því að makinn þinn hafi ekki sömu áhugamál og þú, hlustaðu á þennan.
Í þættinum fjalla ég um mismunandi félagslegar þarfir sem við höfum og hvernig við verðum að fá þeim uppfyllt úr mörgum ólíkum áttum.
Lestu um Fullvalda kvennaretreatið (sem þú getur komið á) hér: https://sundurogsaman.me/fullvaldaretreat
Njótið vel, hlakka til að heyra frá ykkur á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman/
-
#2 Marcel - viðtal við kærastann minn um frelsi, gildi og vöxt í samböndum.
Í þessum þætti fáið þið viðtal við Marcel kærastann minn. Bæði höfum við fetað ótroðnar leiðir í að skapa samböndin okkar innan polyamory og hér ræðum við vítt og breitt um það helsta sem hefur mótað breytingar og vöxt okkar í samböndum. Athugið að viðtalið er á ensku. Njótið vel!
-
#1 Hvernig set ég mig í fyrsta sæti?
Loksins er hlaðvarp Sundur & Saman komið út!Hér svara ég spurningunni "Hvernig set ég sjálfa mig í fyrsta sæti?"Ef þú ert með spurningu eftir þáttinn, vilt vita meira um námskeiðin eða markþjálfunina sendu á mig línu.Þú finnur mig á instagram:https://www.instagram.com/sundurogsaman/Vefsíðan mín er: https://sundurogsaman.is