
Draugasögur
Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang. Oftar en ekki fléttast einnig inn morð og svik 🩸 Svo ef þú elskar að ferðast og ert það sem kallast Dark tourist, kannski jafnvel smá sögunörd og hefur gaman að sakamálum, þá er þetta podcast sem þú ættir að tékka á. Þáttastjórnendur eru hjónin Stefán John og Katrín en þau eru stofnendur og eigendur framleiðslu fyrirtækisins Ghost Network sem sérhæfir sig í hlaðvörpum. Þau halda einnig út hlaðvörpunum Mystík Podcast og Sannar Íslenskar Draugasögur ásamt því að framleiða önnur hlaðvörp á Íslenskum markaði. Þau ferðast reglulega til að skoða draugalega staði og hafa nú þegar rannsakað nokkra af reimdustu stöðum í heimi t.d. hið eina og sanna Conjuring Hús, Sallie House, Shrewsburry fangelsið, Höfða, Hvítárnesskála og svo mætti lengi telja. Þau hafa stundum verið kölluð drauga sérfræðingar Íslands en ásamt því að ferðast þá hafa þau einnig hjálpað mörgum Íslenskum fjölskyldum sem hafa verið að kljást við ásóknir. Langar þig að vera partur af Draugasögu samfélaginu? Finndu Draugasögur Podcast í Patreon appinu og veldu Join For Free. Kostar ekkert en þar er allskonar draugalegt sem er eingöngu þar inni. Þú getur einnig skráð þig í áskrift á patreon.com/draugasogur og opnað nýjan heim!
Trailer
Info
Informationen
- Kanal
- Erstellt vonGhost Network®
- Jahre aktiv2020 - 2026
- Folgen215
- BewertungAnstößig
- Copyright© Copyright 2026 Ghost Network®
- Sendungswebsite
- Anbieter