Frelsi og fullveldi

Málfundafélagið frelsi og fullveldi

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI? Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar. Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar. Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki. Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin. Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga. Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.

  1. Málfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis

    15.11.2024

    Málfundur #11: Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis

    Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 4. nóvember 2024 en þetta var ellefti opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Stefnumál málfundafélagsins Frelsis og fullveldis. Framsögumenn voru þeir sr. Geir Waage og sr. Halldór Gunnarsson. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir. Stefnumálin eða hugmyndir Málfundafélagsins eru einkum unnar upp úr fundum félagsins og er ætlað að hvetja til umræðu í aðdraganda Alþingiskosninganna 2024. Öllum framboðum og einstaklingum verður heimilt að nýta hugmyndir sem koma fram í stefnunni og bregðast við þeim á fundinum. Í lok fundar var tillaga um hugmyndir Málfundafélagsins, með þeim breytingum sem gerðar voru á henni á fundinum, borin upp og samþykkt samhljóða. Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu þess sem talar og ýta síðan á spilarann. Tímalínur ræðumanna: 0:00:00  Ólafur Ísleifsson formaður framkvæmdanefndar0:03:38  Geir Waage framsögumaður0:39:05  Halldór Gunnarsson framsögumaður1:05:40  Valdimar Jóhannesson1:10:55  Halldór Gunnarsson1:12:57  Arnar Þór Jónsson1:18:00  Halldór Sigurþórsson1:21:27  Arndís Ósk Hauksdóttir1:28:35  Guðbjörn Jónsson1:33:00  Bryndís Geirsdóttir1:35:10  Guðrún Ágústa Ágústsdóttir1:39:28  Valdirmar Jóhannesson1:41:40  Guðbjörn Jónsson1:43:14  Arnar Þór Jónsson1:46:04  Halldór Gunnarsson1:47:09  Geir Waage2:03:14  Anna Björg Hjartardóttir fundarstjóri (Tillaga borin upp)

    2 Std. 4 Min.
  2. Málfundur #10: Staða Íslands innan EES og bókun 35

    25.09.2024

    Málfundur #10: Staða Íslands innan EES og bókun 35

    Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju mánudagskvöldið 16. september 2024 en þetta var tíundi opni fundur félagsins frá stofnun þess vorið 2023. Fundarefnið var Staða Íslands innan ESS og bókun 35. Framsögumenn voru þeir Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur með áherslu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál og Bjarni Jónsson alþingismaður.  Báðir hafa þeir nýleg skrifað athyglisverðar greinar í Morgunblaðið og á vefmiðilinn Vísi. Grein Hjartar heitir "Milljarðatugir Jóns Baldvins" https://www.visir.is/.../milljarda-tugir-jons-bald-vins... Grein Bjarna heitir "Íslendingar áfram sjálfstæð þjóð?" og birtist í Morgunblaðinu 13. september s.l. Þar fjallar Bjarni um viðnám hans gegn bókun 35. https://www.mbl.is/mogginn/bladid/innskraning/... Fundarstjóri var sr. Halldór Gunnarsson. Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu þess sem talar og ýta síðan á spilarann. Tímalínur ræðumanna: 0:00:00  Ólafur Ísleifsson, formaður framkvæmdanefndar0:01:10    Halldór Gunnarsson, fundarstjóri0:02:40  Hjörtur J. Guðmundsson, framsögumaður0:27:10   Bjarni Jónsson, framsögumaður0:50:37  Ólafur Ísleifsson 1:04:03  Sigurður Þórðarson1:12:41    Birgir Steingrímsson1:16:48   Halldór Sigurþórsson1:19:16    Haraldur Ólafsson1:22:10   Halldór Gunnarsson1:27:00   Kristinn Sigurjónsson1:28:40   Bergþór Ólason1:33:30   Bjarni Jónsson, framsögumaður1:40:10    Hjörtur J. Guðmundsson, framsögumaður1:48:20    Bryndís Geirsdóttir1:51:06    Inga Guðrún Halldórsdóttir1:53:55   Ólafur Ísleifsson, formaður framkvæmdanefndar

    1 Std. 55 Min.
  3. Málfundur #8: Varðstaða um íslensk gildi

    02.04.2024

    Málfundur #8: Varðstaða um íslensk gildi

    Upptaka/Hlaðvarp: Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 18. mars síðasliðinn en þetta var áttundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var Varðstaða um íslensk gildi. Framsögumenn voru þeir Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og Birgir Þórarinsson alþingismaður. Fundarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir. Á fundinum var ályktun um aðgerðir til að tryggja varðstöðu um íslensk gildi borin upp og samþykkt með margföldu lófataki. Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi ræðumanns hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu ræðumanns og ýta síðan á spilarann. Tímalínur ræðumanna: 0:00:00  Geir Waage, formaður málfundafélagsins0:03:10   Anna Björg Hjartardóttir, fundarstjóri0:04:41   Birgir Þórarinsson, framsögumaður0:24:10   Stefán Einar Stefánsson, framsögumaður0:47:02   Ólafur Ísleifsson les tillögu að ályktun0:53:50   Ásta Óla Halldórsdóttir1:01:25    Óttar Óttarsson1:05:38   Edith Alvarsdóttir1:08:32   Halldór Gunnarsson1:13:50    Arndís Ósk Hauksdóttir1:22:36   Halldór Gísli Sigurþórsson1:27:16    Geir Waage1:40:24   Unnur Eggertsdóttir1:48:21    Anna Björg ber upp ályktunina sem lá fyrir1:49:25   Birgir Þórarinsson, framsögumaður1:53:27   Stefán Einar Stefánsson, framsögumaður2:00:34  Geir Waage, formaður slítur fundi

    2 Std. 3 Min.
  4. Málfundur #7: Löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum

    07.03.2024

    Málfundur #7: Löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum

    Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 26. febrúar síðasliðinn en þetta var sjöundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum. Framsögumenn voru þeir Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri og fv. alþingismaður og Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur og formaður tollvarðafélags Íslands. Funarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir. Á fundinum var ályktun um brýnar aðgerðir til að tryggja stjórn á landamærum landsins borin upp og samþykkt fyrir fullu húsi með margföldu lófataki. Hægt er að skrá sig á póstlista og gerast félagsmaður og sjá ljósmyndir frá fundinum með því að fara á Facebooksíðu félagsins. Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi ræðumanns hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu ræðumanns og ýta síðan á spilarann. Tímalínur ræðumanna: 0:00:00  Geir Waage, formaður málfundafélagsins0:05:16   Anna Björg Hjartardóttir0:05:55   Guðbjörn Guðbjörnsson, framsögumaður0:38:55   Karl Gauti Hjaltason, framsögumaður1:06:10    Ólafur Ísleifsson les tillögu að ályktun1:13:14    Jóhann R. Benediktson1:25:37   Guðbjörn Jónsson1:30:49   Arndís Ósk Hauksdóttir1:34:00   Valdimar H. Jóhannesson1:38:10    Jóhann R. Benediktsson1:40:17    Ragnheiður Svava Þórólfsdóttir1:42:10   Sverrir Sverrisson1:45:50   Halldór Sigurþórsson1:47:15    Geir Waage1:57:42   Karl Gauti Hjaltason, framsögumaður2:00:00  Guðbjörn Guðbjörnsson, framsögumaður2:07:00   Anna Björg ber upp ályktunina sem lá fyrir2:07:36   Geir Waage, formaður slítur fundi

    2 Std. 10 Min.
  5. Málfundur #6: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin

    23.01.2024

    Málfundur #6: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin

    Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 6. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 15. janúar síðastliðinn. Umræðuefni: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin Framsögumenn: Jón Magnússon og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismenn Fundarstjóri: Anna Björg Hjartardóttir Breytt stefna í málefnum hælisleitenda var mikið rædd og eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu opnaði fundarstjóri á mælendaskrá fundarins. Miklar og góðar umræður spunnust en hlýða má á framsögumenn og ræður allra sem tóku til máls í spilaranum hér að ofan. Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi ræðumanns hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu ræðumanns og ýta síðan á spilarann. Tímalínur ræðumanna: 0:00:00  Geir Waage0:01:56   Jón Magnússon0:25:37   Ólafur Ísleifsson0:45:57   Ólafur Ísleifsson les tillögu að ályktun um stefnubreytingu í málefnum hælisleitenda0:49:37   Arndís Ósk Hauksdóttir1:01:43    Edith Alvarsdóttir1:08:41    Valdimar H. Jóhannesson1:16:51     Guðfinnur Halldórsson1:20:28    Halldór Sigurþórsson1:27:43    Halldór Gunnarsson1:34:05    Unnur Eggertsdóttir1:37:28    Guðbjörn Jónsson1:41:09    Jón Magnússon1:44:03   Ólafur Ísleifsson ber upp tillögu að ályktun um stefnubreytingu í málefum hælisleitenda (samþykkt samhljóða)1:48:12    Geir Waage slítur fundi

    1 Std. 49 Min.

Info

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI? Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar. Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar. Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki. Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin. Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga. Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.