Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

  1. -3 J

    #117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt

    Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur smíðað tvær afar áhugaverðar heimasíður sem notast við mállíkön til þess að greina íslenskt samfélag úr tveimur áttum.Þar er annars vegar um að ræða síðuna Þingfréttir (thingfrettir.is) þar sem starfsemi Alþingis er greind með áhugaverðum hætti og nýstárlegum og hins vegar ESB vaktin (esbvaktin.is) þar sem umræðan um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er greind og vegin og metin. Er hér um að ræða einskonar staðreyndavakt sem mun nýtast almenningi til að greina kjarna frá hysmi og sannleika frá lygi.

    1 h 37 min
  2. 6 MARS

    #114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson

    Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála. Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005. Viðkvæm staða efnahagsmála Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað. Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi? Hvað finnst Bjarna Benediktssyni um atkvæðagreiðsluna um mögulega aðild að ESB? Mun stríðið í Íran leiða áföll yfir Ísland? Í fyrri hluta þáttarins  verður hins vegar rætt við þá Þórð Gunnarsson, hagfræðing og Stefán Gunnar Sveinsson, blaðamann á Morgunblaðinu en þeir hafa báðir sérþekkingu á málefnum sem tengjast hinum miklu stríðsátökum sem nú geisa í Íran. Í viðtali við þá verður reynt að varpa upp mynd af atburðum síðastliðinnar viku og hvaða áhrif þeir kunni að hafa vítt og breitt um heimsbyggðina.

    1 h 42 min
  3. 13 FÉVR.

    #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?

    Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%. Hversu hátt geta vextirnir farið? Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi? Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju. Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög. Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.

    2 h 11 min

À propos

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

Vous aimeriez peut‑être aussi