Gímaldið

Gímaldið

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

  1. Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur

    vor 3 Tagen

    Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur

    Hvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, en aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í ýmiss konar þjónustu heldur en í verði á matvörum. Verðskyn neytenda brenglast í verðbólgu segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Ítarleg úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára. Viðmælendur í þættinum eru Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ og Brynhildur Pétursdóttur, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.   Þáttastjórnandi er Helga Arnardóttir blaðamaður og nýr liðsmaður Gímaldsins. Meðal þess sem fjallað er um í þættinum: Verðlag á Íslandi mælist 84% hærra en að meðaltali í 27 Evrópulöndum, samkvæmt úttekt Visku. Matvara er 55% dýrari en í ESB-ríkjunum, samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Hærri laun skýri ekki allan verðmuninn. Verðmunurinn sé nær tvöfaldur á við launamuninn, og ofurtollar og fákeppni skýri stóran hluta þess sem umfram er.Engin samkeppnislög ná yfir afurðastöðvar á Íslandi, sem mega því hafa með sér verðsamráð. Páll Gunnar Pálsson segir samningsstöðu bænda veika í því ljósi og hækkun á kjöti eftir 2022 viðvarandi meiri en í öðrum vöruflokkum.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að lítil verðsamkeppni ríki á matvörumarkaði; samkeppnin snúist oft um önnur atriði á borð við útlit, stærð og fjölgun sjálfsafgreiðslukassa. Prís býður lægsta matvöruverðið, um 4% lægra, samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ.Hagnaður Haga, sem rekur meðal annars Bónus, var 7,4 milljarðar króna 2025 og hefur aukist um 4,7 milljarða á fimm árum. Hagnaður Festi, sem rekur Krónuna, var 6,2 milljarðar og jókst um 3,9 milljarða á sama tímabili, þar af var hagnaður Krónunnar einnar 2,9 milljarðar — tæpur helmingur af heildarhagnaði Festi.Viðar Ingason, hagfræðingur VR, segir laun venjulega hækka til að vinna upp verðbólgu sem þegar er orðin. Sambandið liggi alla jafna í báðar áttir, en algengara sé að það finnist frá verðlagi yfir í laun.Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, benti á hagnaðardrifna verðbólgu — svokallaða gróðaverðbólgu — strax árið 2023 þegar hann var hagfræðingur BHM.Samkeppniseftirlitið byggir á EES-samningnum og Páll Gunnar segir að án hans væri lítið sem ekkert samkeppniseftirlit á Íslandi.Að mati Hagfræðistofnunar myndi 25% lækkun matarverðs við ESB-aðild, eins og varð í Svíþjóð og Finnlandi, leiða strax til 3,5% lækkunar neysluverðs. Afnám tolla og annarra gjalda hefði umtalsverð áhrif til lækkunar.Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir verðskyn fólks brenglast í miklu verðbólguumhverfi. „Við þurfum þjóðarátak í nísku,“ segir Vilhjálmur Hilmarsson hjá Visku.Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þessi umfjöllun er opin en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    48 Min.
  2. Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já

    20. Juni

    Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já

    Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um:  Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræðurmikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virkmótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefnu aðildarríkjaeldri og nýrri viðræðurammasamninganefndir Íslands og samráð innanlandsþjóðaratkvæðagreiðslu og stjórnarskrárbreytingarFullgildingu samnings á Alþingi og gildistökukosningar til EvrópuþingsinsHægt er að lesa fréttaskýringuna á vef Gímaldsins, skoða skýringarmyndir sem henni fylgja og lesa tengt efni. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn.  Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þessi lestur er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    14 Min.
  3. Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB

    18. Juni

    Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB

    Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður.  Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tungu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður við ESB. Það helsta úr viðtalinu: Gangi ríki í ESB verður tungumál þess sjálfkrafa eitt af opinberum málum sambandsins. Hver borgari aðildarríkis á rétt á að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin móðurmáli og fá öll lög og reglugerðir á sínu tungumáli.Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa ekki fengið hljómgrunn. Hvert ríki hefur neitunarvald og „það vill enginn fórna sínu tungumáli".Þegar síðustu aðildarviðræður fóru fram var túlkanám við Háskóla Íslands eflt fyrir tilstilli ESB.Að mati Gauta steðja meiri ógnir að íslenskunni innanlands og frá bandarískum tæknirisum, en nokkurn tíma frá Brussel.Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    25 Min.
  4. Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina

    16. Juni

    Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu.  Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust? Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands? Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum? Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá?Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að stunda hvalveiðar? Af hverju mega útlendingar koma nálagt orkufrekum iðnaði en ekki sjávarútvegi? Er Evrópusambanið eins og Framsókn?Geta hagsmunir bænda og neytenda farið saman? Af hverju er lega Íslands mikilvæg fyrir Evrópu og Bandaríkin?Af hverju er mikilvægt fyrir efasemdafólk að segja já í haust? Textaútgáfa viðtalsins er aðgengileg á vef Gímaldsins.  Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn.  Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    57 Min.
  5. 13. Juni

    Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB

    Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu.  Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna.  Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdastjóra Evrópustrauma. Það helsta úr viðtalinu: Skýrslan skoðar þrjú meginsvið: tolla, gjaldmiðil og regluumhverfi og skoðar hvað breytist fyrir íslensk fyrirtæki við ESB-aðildÍsland er í dag með 0% tolla á flestar vörur. Við aðild tækum við upp ytri tolla ESB sem eru hærri á ýmsum vöruflokkumStærsta tollbreytingin gagnvart þriðju ríkjum varðar Kína. Þar eru tollar ESB hærri en núverandi íslenskir tollarInni í tollabandalaginu sparast umsýsla og tollskýrslugerð, jafnvel þó tollar séu 0% nú kostar umsýslan sittVextir á fyrirtækjalánum eru yfir 10% á Íslandi en 3–6% í ESBUpptaka evru tekur langan tíma, þjóðirnar hafa tekið þrjú til nítján ár frá inngöngu í ESB þar til evra var tekin uppVerðstöðugleiki til lengri tíma yrði betur tryggður með evru en það sem þarf að breytast er hjá okkur, ekki hjá BrusselNetverslun frá ESB-löndum yrði mun auðveldari fyrir neytendur og minni hætta á tvísköttunBreytingarnar yrðu mest fyrir landbúnaðinn, þar myndi samkeppnisumhverfið breytast verulega en ekki er rýnt sérstaklega í þau mál frá sjónarhóli framleiðendaHöfundur telur vanta fleiri greiningar, einkum á áhrifum á landbúnað og einnig samanburð við önnur ríki sem gengið hafa í ESBEvrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    30 Min.
  6. 11. Juni

    Stóru samtökin þegja: ASÍ og SA munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu

    Stór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágústSólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍFélag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðuÍslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til aðildar kæmi og gæti styrkt stöðu sína, líkt og írskan gerðiFyrirspurnir og erindi til Brussel yrði hægt að senda á íslensku og þeim yrði svarað á íslenskuSjávarútvegurinn og ólík afstaða útgerðarmanna til ESBUmsjón: Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    26 Min.
  7. Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild

    9. Juni

    Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild

    „Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðræður.  Viðhorf útgerðarmanna til ESBSjávarútvegsstefna ESB og stefnuleysi ÍslandsÖnnur aðildarríki eiga auðlindirSérlausnir fínar en óþarfarTækifærin og hætturnarÁhugi erlendra fjárfesta ofmetinnÞunglamalegt Brussel eða hringlandaháttur ÍslandsReynslan af embættismönnum í Brussel Þjóðir með sérþekkingu hafa áhrif í BrusselTextaútgáfu viðtalsins má finna á vef Gímaldins.  Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn.  Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    1 Std. 16 Min.

Info

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Das gefällt dir vielleicht auch