Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?  Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

  1. vor 2 Tagen

    S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki

    Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram. Við ræðum meðal annars: – hvað þú ert í raun að selja – hverjum þú ert að selja – hvað gerir þig öðruvísi – hvernig þú finnur markhópinn – af hverju sagan skiptir máli – hvernig þú heldur fókus – hvað þarf að passa áður en þú ferð af stað – og af hverju manneskjan á bakvið merkið skiptir máli .....Og loksins talar Margrét almennilega um vörumerkið sitt. Hún segir frá sögunni á bakvið nafnið, hugmyndafræðinni og því sem hún er í raun að reyna að byggja upp. Avelin Rae er ekki bara skartgripamerki, heldur vörumerki með skýra sýn á gæði, tímalausan stíl og hversdagslúxus. Arna kemur svo með sitt sterka sjónarhorn úr vörumerkjavinnu og rekstri, spyr réttu spurninganna, setur hlutina í samhengi og gerir þetta bæði praktískt og skýrt. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall+, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    1 Std. 14 Min.
  2. 11. Juni

    S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll

    Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það hefur aldrei komið til greina að gefast upp. Svo förum við auðvitað í stóru spurninguna: Hvernig er hinn fullkomni Smitten-prófíll? Hvaða myndir virka? Hverjar alls ekki? Hver eru rauðu flöggin? Og hvernig byrjar maður samtal án þess að segja bara „hæ“? Mögulega fórnar Margrét sér fyrir málsstaðinn... og skráir sig á Smitten í þættinum. Davíð hjálpar henni að velja réttu myndirnar og hikar ekki við að benda á þær sem eru ekki málið.  Þetta er þáttur fyrir alla sem vilja heyra skemmtilegt samtal um frumkvöðlastarf, vörumerki, lærdóm og fjármögnun, nú eða bara þá sem vilja fullkomna Smitten-prófílinn sinn. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🔊 Sérstakar þakkir fyrir hljóð- og eftirvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    1 Std. 41 Min.
  3. 11.12.2025

    08 | Heiðbjört Ósk - Þegar erfiðar aðstæður kveikja nýjan neista

    Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er ekki forstjóri stórfyrirtækis eða virtur aðili í markaðsbransanum. Heiðbjört Ósk er kona sem við getum margar tengt við, móðir, snyrtifræðingur, sem eftir 15 ár í sama starfi var farin að finna fyrir leiða og þörf fyrir breytingu. Þegar sonur hennar veiktist alvarlega og var frá skóla í tæp tvö ár fór Heiðbjört að kenna honum heima. Það kveikti neista hjá henni sem hún ákvað að fylgja og hún skráði sig í kennaranám. Nú þremur árum síðar hefur lífið tekið algjöra U-beygju. Auk þess að hafa skipt um starfsvettvang gaf Heiðbjört á dögunum út sína fyrstu bók; Mamma, sagan þín, og stofnaði útgáfufélag. Í þættinum ræðum við ferlið við bókaútgáfuna og hversu mikið gæfuspor það reyndist henni að viðurkenna að hún þyrfti ekki að gera allt ein. Hún segir frá því hvernig það að fá fleiri með sér í lið gerði ferlið skemmtilegra og mun árangursríkara. Önnur umræðuefni þáttarins eru m.a: Mikilvægi þess að láta ekki starfstitla skilgreina sig. Af hverju stefnubreytingar eru aldrei mistök heldur merki um vöxt. Hvernig móðurhlutverkið varð til þess að hún fór að sjá sína eigin móður í nýju ljósi og hvernig bókin hennar er hönnuð sem brú milli kynslóða til að varðveita sögu móðurinnar. Hvernig bókaævintýrið hefur opnað á fleiri tækifæri og aukið sjálfstraust. Tölvupóstar til þjóðþekktra kvenna og hvers vegna svar frá einni þeirra grættu Heiðbjörtu. Fyrstu skrefin fyrir þá sem langar að breyta um stefnu eða prófa nýjan starfsvettvang. Þetta er þáttur sem minnir okkur á að stærstu tækifærin leynast oft í óvæntum áskorunum og það er aldrei of seint að fylgja hjartanu og prófa eitthvað nýtt 🤍 📖 Söguspor og bókin „Mamma, sagan þín" ✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is  & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina! ♡  Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói. 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

    1 Std. 6 Min.

Info

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?  Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

Das gefällt dir vielleicht auch