Karfan

Karfan

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

  1. Aukasendingin: Allt logar í úrslitakeppninni – Oddaleikir, slagsmál og djúpfalsað efni

    5. maj

    Aukasendingin: Allt logar í úrslitakeppninni – Oddaleikir, slagsmál og djúpfalsað efni

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir ótrúlegan viðsnúning í undanúrslitum karla og kvenna þar sem Stjarnan og Grindavík hafa bæði misst niður 2-0 forystu í 2-2 gegn Tindastóli og Njarðvík. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi oddaleiki, en þrír af fjórum undanúrslitum deildanna ráðast í hreinum úrslitaleikjum sem undirstrikar þá gífurlegu spennu sem ríkir þessa dagana. Auk ítarlegrar yfirferðar um gang mála á vellinum er rýnt í málin utan hans. Strákarnir gagnrýna aðgang blaðamanna að leikjum, taka góða dýfu í dómaraumræðuna og fara yfir skuggahliðar stemningsinnar, þar á meðal átök stuðningsmanna á bílastæðinu í Garðabæ. Þátturinn er þó ekki eingöngu helgaður íþróttum því sveitastjórnarkosningar ber á góma, Jónfrí kynnir nýja lagið sitt „Djúpfalsað efni“ og slúðurhornið er á sínum stað þar sem farið er yfir það sem er að gerast bak við tjöldin í boltanum. Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

    1 t. 53 min.

Om

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Måske vil du også synes om