Handkastið Handkastið
-
- Deportes
Podcast by Handkastið
-
Eyjabölvuninni í Krikanum aflétt og Mosfellingar í lykilstöðu
Við settumst niður með Ásgeir Jónssyni og fórum yfir undanurslitaeinvígin í Olís deild karla. FH-ingar eru komnir í úrslit og Mosfellingar eru í lykilstöðu í sínu einvígi gegn Val. Kíktum á úrslitaeinvígið hjá stelpunum og skúbbuðum nýju þjálfarateymi hjá nýliðum Fjölnis í Olísdeildinni.
-
Eyjan beit frá sér með aðstoð dómaranna & Kiddi Bjé kveikti í Fjölnismönnum
Geðveikin í Eyjum og hrun Mosfellinga var til umræðu í þættinum. Auk þess var sjónvarpsmálin rædd í 100x skipti og ótrúleg endurkoma Fjölnismanna sem eru mættir í Olís-deildina.
-
Eyjagrýlan mætti í Krikann og Óskar Bjarni leyfir Valsmönnum að dreyma
FH-ingum mistókst að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins þegar þeir tóku á móti ÍBV. Valsmenn eru komnir í úrslit í Evrópubikarnum eftir auðvelt einvígi gegn Baia Mare. Hiti í umspilinu karlamegin og það verður vel fylgst með skrefunum hjá Haukastelpunum gegn Fram á Verkalýðsdaginn.
-
Eyjamenn þurfa að skila skömminni - Yfir 25.000 heimili horfa á þjóðaríþróttina
Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn er í fullum gangi. FH-ingar eru komnir með níu fætur í úrslitaeinvígið og það yrði þjálffræðilegt afrek hjá Gunna Magg að koma Aftureldingu ekki í úrslitaeinvígið. Umspilið, úrslitakeppni kvennamegin og meira til - allt í Handkastinu og allt í Handboltapassanum.
-
Valur nálgast það að skrifa söguna og FH-ingar áttu fyrsta höggið
FH-ingar eru komnir í 1-0 í einvíginu gegn ÍBV eftir sigur í Kaplakrika áðan. Valsmenn unnu 8 marka sigur í Evrópudeildinni í kvöld á heimavelli og færast nær því að vera fyrsta íslenska liðið til að vinna evrópukeppni. Undanúrslit í Olís kvenna fara af stað á þriðjudaginn og Einar Jónsson þjálfari Fram kíkti í heimsókn til okkar.
-
Fjögur bestu berjast um þann stóra - Basti ræðir tímann hjá HK
Mosfellingar eru mættir í undanúrslitin. Fjögur bestu lið landsins munu því berjast um þann stóra. Gestur þáttarins var Sebastian Alexandersson sem fer yfir tíma sinn hjá HK í lokþáttar og skrautlegar samningaviðræður við stjórn HK á tímabilinu.